Herra Hnetusmjör og Birgitta Haukdal gefa út nýtt jólalag saman Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 9. desember 2022 15:30 Herra Hnetusmjör og Birgitta Haukdal. Vísir/Vilhelm Idol dómararnir Herra Hnetusmjör og Birgitta Haukdal hafa gefið út nýtt jólalag saman. Lagið kallast Cashmere Draumur. „
Ég hef farið varlega í þetta því það er strembið að gera gott jólalag,“ sagði rapparinn Herra Hnetusmjör í viðtali hjá Ívari Guðmunds á Bylgjunni í dag. Hann gaf til kynna að kannski væri jólaplata væntanleg frá honum í náinni framtíð. Platan væri þá eingöngu með frumsömdum jólalögum. Lagið Þegar þú blikkar sem hann gerði með BÓ og nýja jólalagið Cashmere Draumur verða þá hugsanlega á plötunni. „Engin Cover, allt ný lög,“ segir Herra Hnetusmjör um plötuna sem hann myndi vilja gera. „Ég nenni ekki að vera að syngja einhver karíókí lög.“ Hann vill bara gera þetta með kanónur með sér og kom Birgitta Haukdal ein til greina fyrir þetta lag. Lagið þeirra Cashmere Draumur má heyra í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Cashmere Draumur - Herra Hnetusmjör og Birgitta Haukdal Hér fyrir neðan má hlusta á viðtal Ívar Guðmunds við Herra Hnetusmjör.
Jól Jólalög Tónlist Mest lesið Jóladagatal Vísis: Langstærsti smellur Þórunnar Antoníu Jól Er fyrir löngu byrjuð að skreyta heimilið Jól Vinsæl jóladagatöl á Íslandi: Bjór, snyrtivörur, kaffi og lakkrís Jól Jóladagatal Vísis: Svona var FM95BLÖ kynntur til leiks fyrir átta árum Jól Grín og glens: Jólabrandarar og gátur Jól Hamborgarhryggur í hverjum poka Jól Pallíettur og jólakokteilar í hádeginu hjá flugfreyjum Icelandair Jól Valið „Jólahús Kópavogsbæjar 2022“ Jól Heitustu jólagjafir ársins fyrir hana Jól Oumph! wellington og sætkartöflumús með karamellupekanhnetum Jól