Viðskipti innlent

Jólabónus Vopnfirðinga að hefja loðnuvinnslu fyrir jól

Kristján Már Unnarsson skrifar
Víkingur AK við bryggju á Vopnafirði í morgun. Loðnunni var dælt úr lestum skipsins og beint inn í vinnsluhús Brims.
Víkingur AK við bryggju á Vopnafirði í morgun. Loðnunni var dælt úr lestum skipsins og beint inn í vinnsluhús Brims. Brim/Magnús Þór Róbertsson

Fyrsti loðnufarmur þessarar vertíðar kom til Vopnafjarðar í morgun en þar stendur núna yfir löndun úr Víkingi AK, skipi Brims. Rekstrarstjóri Brims segir loðnuna sannkallaðan jólabónus en tíu ár eru frá því loðnuvinnsla hófst síðast á Vopnafirði fyrir jól.

Það var á tíunda tímanum í morgun sem uppsjávarfiskiskipið Víkingur Ak lagðist að bryggju á Vopnafirði með um sjöhundruð tonn af loðnu sem veiddust úti fyrir Norðurlandi, austur af Kolbeinseyjarhrygg.

Víkingur AK siglir inn til Vopnafjarðar í ljósaskiptunum í morgun.Brim/Magnús Þór Róbertsson

Magnús Þór Róbertsson, rekstrarstjóri Brims á Vopnafirði, segir að loðnan líti mjög vel út. Hún sé ágætlega stór og vonast hann til að hægt verði að frysta megnið af henni til manneldis en eitthvað af henni muni þó fara til fiskimjölsframleiðslu.

Víkingur kominn að bryggju með 700 tonna loðnufarm.Brim/Magnús Þór Róbertsson

Þessi byrjun loðnuvertíðar er óvenju snemma þennan veturinn miðað við undanfarin ár. Þannig rifjar Magnús Þór upp að áratugur er liðinn frá því loðnuvinnsla hófst síðast á Vopnafirði fyrir jól en það var árið 2012. Segir Magnús þetta sannkallaðan jólabónus, bæði fyrir starfsfólkið og fyrirtækið.

Loðnan flæðir inn í flokkunarvélar uppsjávarvinnslu Brims á Vopnafirði í morgun.Brim/Magnús Þór Róbertsson

Brim er langstærsta fyrirtækið á Vopnafirði með 66 starfsmenn. Þar af áætlar Magnús að 15 til 18 manns vinni við loðnufrystinguna og fjórir í bræðslunni.

Magnús segir þó óvíst hversu samfelld vinnslan verður núna í desember en annað skip Brims, Venus, er á siglingu úti fyrir Norðausturlandi að skyggnast eftir loðnu og stefnir á sömu slóðir og fyrsta loðnan veiddist um helgina.

Frá Vopnafirði. Þar er Brim langstærsta fyrirtækið.Stöð 2

Þá var skip Síldarvinnslunnar, Beitir NK, á leið til Neskaupstaðar með 1.240 tonn af loðnu, að sögn Sturlu Þórðarsonar skipstjóra, og áætlaði hann fyrir hádegi að koma inn til Norðfjarðar um eittleytið. Sturla gerir ráð fyrir að loðnan fari til bræðslu.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2 um fyrstu loðnufarma vertíðarinnar:


Tengdar fréttir

Fyrstu loðnufarmarnir á leið til Vopnafjarðar og Norðfjarðar

Búist er við að fyrstu loðnu þessarar vertíðar verði landað á Austfjörðum á morgun. Von er á farmi til Vopnafjarðar í fyrramálið og öðrum til Norðfjarðar eftir hádegi. Nýafstaðin loðnuleit gefur ekki tilefni til að auka loðnukvótann, að mati Hafrannsóknastofnunar.

Loðnuveiðar hafnar en ekki talið tilefni til að auka kvóta

Fyrsta loðnan á þessari vertíð er veidd og var skip Síldarvinnslunnar, Beitir, komið með ellefuhundruð tonn nú laust fyrir hádegi. Hafrannsóknastofnun telur ekki tilefni til þess að auka loðnukvótann, eftir auka loðnuleiðangur sem lauk um helgina.

Komandi loðnu­ver­tíð gæti skilað allt að 30 milljörðum í þjóðarbúið

Þrátt fyrir að loðnukvóti komandi vertíðar stefni í að verða um fjórðungur af síðustu vertíð í lönduðum tonnum mælt, dregst vænt útflutningsverðmæti loðnuafurða aðeins saman um helming. Þetta kom fram í máli Gunnþórs Ingvasonar, forstjóra Síldarvinnslunnar í kynningu á uppgjöri félagsins fyrir þriðja ársfjórðung.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×