Lífið

Jólajóga fyrir börnin - Jólastjarna

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Jólajógamyndbönd Þóru verða sýnd á Vísi og Stöð 2 Vísi.
Jólajógamyndbönd Þóru verða sýnd á Vísi og Stöð 2 Vísi. Vísir/Vilhelm

Þóra Rós Guðbjartsdóttir gerði jólajógaþætti fyrir Vísi og æfing dagsins nefnist Jólastjarna. Æfinguna má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

„Þættirnir eru hugsaðir fyrir leikskólabörn og fyrstu stig grunnskóla en auðvitað geta allir í fjölskyldunni haft gaman af þáttunum. Þetta getur verið kósý fjölskyldustund yfir hátíðarnar,“ segir Þóra Rós um æfingarnar.

Klippa: Jólajóga fyrir krakka - Jólastjarna

„Mig langaði að gera jólayoga fyrir krakka. Hátíðarnar færa okkur dýrmætar stundir og á sama tíma getur spenningurinn verið mikill. Hugmyndin með jólajóga er að kenna börnum að taka eftir öllu því fallega sem jólin koma með, hvetja þau til að taka betur eftir umhverfinu sínu, og vera meðvituð um líkamann sinn og tilfinningar.“

Þóra Rós er með síðuna 101yoga.is og Instagram @101yogareykjavik


Tengdar fréttir

Jólajóga fyrir krakka: „Það getur verið krefjandi að vera öll heima“

„Þættirnir eru hugsaðir fyrir leikskólabörn og fyrstu stig grunnskóla en auðvitað geta allir í fjölskyldunni haft gaman af þáttunum. Þetta getur verið kósý fjölskyldustund yfir hátíðarnar,“ segir Þóra Rós Guðbjartsdóttir. Hún gerði krakkajógainnslög sem sýnd verða á Vísi og Stöð 2 Vísi um hátíðarnar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×