Lífið

Hringur á fingur hjá Hörpu Kára

Atli Ísleifsson skrifar
Harpa Káradóttir og Guðmundur Böðvar Guðjónsson.
Harpa Káradóttir og Guðmundur Böðvar Guðjónsson. Instagram/Vísir/Vilhelm

Förðunarfræðingurinn Harpa Káradóttir og Guðmundur Böðvar Guðjónsson eru trúlofuð. Þau trúlofuðu sig um áramótin. 

Harpa greinir frá þessu á Instagram. Þar sýnir hún fallegan hringinn og með færslunni fylgja bæði hringa- og kampavínsglasatákn, auk þess að Guðmundur Böðvar er merktur.

Harpa þykir einn færasti förðunarfræðingur landsins en Guðmundur Böðvar spilaði um árabil meistaradeildarfótbolta, meðal annars með Fjölni, ÍA og Breiðablik. Guðmundur Böðvar kemur ofan af Skaga og spilaði tæplega hundrað leiki í efstu deild áður en hann lagði skóna á hilluna fyrir þremur árum.

Þau Harpa og Guðmundur Böðvar eignuðust eineggja tvíbura saman sumarið 2020. Fyrir átti svo Harpa dóttur úr fyrra sambandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.