Ofurbloggari selur einbýlishúsið Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 3. janúar 2023 22:16 Húsið var byggt árið 2008 og er með sjö svefnherbergjum og fjórum baðherbergjum. Samsett Marinó Gunnar Njálsson ráðgjafi og ofurbloggari og eiginkona hans Harpa Karlsdóttir snyrtifræðingur hafa sett glæsilegt einbýlishús sitt í Vatnsendahverfi á sölu.
Ásett verð er 235 milljónir en fasteignamat eignarinnar er tæplega 175 milljónir. Um er að ræða 382 fermetra einbýlishús við Fróðaþing í Kópavogi með 35,8 fermetra innbyggðum bílskúr. Húsið er á tveimur hæðum auk kjallara með 70 fermetra óskráðu rými. Húsið var byggt árið 2008 og er með sjö svefnherbergjum og fjórum baðherbergjum. Fram kemur í auglýsingu að eignin standi á 750,0 fermetra lóð sem er frágengin að mestu með tyrfðum flötum, fallegum hlöðnum veggjum og skjólsælli viðarverönd á baklóð með heitum potti. Á neðri hæð hússins eru forstofa, hol, eldhús, samliggjandi glæsilegar stofur, gestasnyrting, þrjú herbergi, baðherbergi og bílskúr sem innangengt er í úr forstofu. Á efri hæðinni eru sjónvarpshol, fjögur barnaherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og hjónasvíta sem er bæði með baðherbergi og fataherbergi innaf. Hér að neðan má sjá myndir af húsinu en nánari upplýsingar um eignina er hægt að finna á fasteignavef Vísis. Um er að ræða 382,4 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum auk kjallara. Alls eru sjö svefnherbergi í húsinu. Hér má sjá eitt af fjórum baðherbergjum sem eru í húsinu. Gengið niður stigann á neðri hæð. Á neðri hæð hússins er glæsileg stofa. Svefnherbergi með fataherbergi. Eldhúsið er bjart og rúmgott með fallegri gluggasetningu og harðparketi á gólfi. Á efri hæð hússins er sjónvarpshol.
Hús og heimili Kópavogur Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Bíó og sjónvarp Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Hvað veistu um... fugla? Lífið Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Tónlist Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Fleiri fréttir Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Sjá meira