„Naomi Osaka hefur dregið sig úr leik á Opna ástralska mótinu. Við munum sakna hennar á #AO2023,“ segir í Twitter færslu mótaraðarinnar í morgun. Hin úkraínska Dayana Yastremska mun taka sæti Osaka á mótinu.
Osaka, sem tvisvar hefur unnið Opna ástralska, hefur ekki spilað tennis síðan í september en hún hefur glímt við bæði þunglyndi og kvíða í fjölda ára.
Þessi 25 ára japanski leikmaður hefur hríðfallið niður heimslistann eftir að hafa verið í fyrsta sæti listans um tíma. Osaka er nú í 47. sæti heimslistans en eftir að hún dróg sig úr leik á Opna ástralska hafa einhverjir áhyggjur af því að hún muni aldrei aftur snúa til baka á keppnisvöllinn.
Ásamt Osaka hefur Venus Williams dregið sig úr leik. Ríkjandi meistari, Ash Barty, mun ekki taka þátt en hún hefur lagt spaðann á hilluna eins og Serena Williams.
Þá hefur Roger Federer einnig lagt sinn spaða á hilluna og efsti maður heimslista karla, Carlos Alcaraz, þurfti að draga sig úr leik vegna meiðsla síðustu helgi. Það verður því nægt rými fyrir ný nöfn til að skjóta sér á stjörnuhimininn á Opna ástralska risamótinu sem hefst þann 16. janúar næstkomandi.