Lífið

Þetta eru lögin sem Idol kepp­endur munu flytja á morgun

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Saga Matthildur, Kjalar, Bía og Símon Grétar eru þeir fjórir keppendur sem eftir standa í Idol.
Saga Matthildur, Kjalar, Bía og Símon Grétar eru þeir fjórir keppendur sem eftir standa í Idol. Stöð 2

Nú styttist óðum í að ný Idolstjarna Íslands verði krýnd en aðeins fjórir keppendur standa eftir; Saga Matthildur, Kjalar, Bía og Símon Grétar.

Síðasta föstudag spreyttu keppendur sig á lögum úr kvikmyndum. Að lokinni símakosningu voru það þeir Kjalar og Guðjón Smári sem hlutu fæst atkvæði en að lokum var það Guðjón Smári sem var sendur heim.

Sjá: „Þetta er náttúrulega bara rugl“

Annað kvöld mun hver keppandi flytja tvö lög, eitt íslenskt lag og eitt gamalt lag. Hér fyrir neðan má sjá hvaða lög keppendur munu flytja.


Símon Grétar - 900-9007

„Vangaveltur“ - Herra Hnetusmjör

„Under the Bridge“ - Red Chili Peppers
Símon Grétar - 900-9007.Stöð 2

Kjalar - 900-9006

„Dakírí“ - Tómas R. Einarsson

„Einhvers staðar einhvern tímann aftur“ - Mannakorn
Kjalar - 900-9006.Stöð 2

Bía - 900-9008

„Í síðasta skipti“ - Friðrik Dór

„Dreams“ - Fleetwood Mac
Bía - 900-9008.Stöð 2

Saga Matthildur - 900-9001

„Ekkert sem breytir því“ - Sálin hans Jóns míns

„Feeling Good“ - Nina Simone
Saga Matthildur - 900-9001.Stöð 2

Tengdar fréttir

„Þetta er náttúrulega bara rugl“

Hinn 24 ára gamli Guðjón Smári kvaddi Idol keppnina á föstudag. Hann heillaði dómara og áhorfendur strax frá fyrstu prufu.

Þessi keppandi var sendur heim úr Idolinu

Fimm keppendur mættu til leiks í æsispennandi Idol-þætti kvöldsins. Þemað voru lög úr kvikmyndum og sungu keppendur lög hvaðanæva að. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.