Real Madrid komið í úrslitaleikinn Smári Jökull Jónsson skrifar 8. febrúar 2023 21:02 Vinicius Jr. fagnar marki sínu fyrir Real Madrid í kvöld. Vísir/Getty Real Madrid er komið í úrslit heimsmeistarakeppni félagsliða eftir 3-1 sigur á Al Ahly í kvöld en leikurinn fór fram í Rabat í Marokkó.
Real Madrid tryggði sér þátttökurétt í keppninni með því að vinna sigur í Meistaradeild Evrópu í fyrra en liðið lagði þá Liverpool 1-0 í úrslitaleik eftir mark Vinicius Jr. Al Ahly hafði þegar leikið tvo leiki í keppninni, gegn nýsjálenska liðinu Auckland og svo Seattle Sounders og með sigrum í báðum leikjunum tryggt sér sæti í undanúrslitum. Leikurinn var rólegur til að byrja með og áttu bæði lið marktilraunir. Real Madrid kom sér hins vegar í lykilstöðu með mörkum sitt hvoru megin við hálfleikinn. Fyrst skoraði Vinicius Jr. á þremur mínútum fyrir leikhlé og Federico Valverde kom Real í 2-0 á fyrstu mínútu síðari hálfleiks. Al Ahly gafst þó ekki upp og minnkaði muninn á 65.mínútu þegar Ali Maâloul skoraði úr vítaspyrnu. Al Ahly komst þó ekki lengra. Luka Modric misnotaði vítaspyrnu fyrir Real skömmu fyrir leikslok en á þriðju mínútu uppbótartíma skoraði Rodrygo þriðja mark Real og gulltryggði sigurinn. Real er því komið í úrslitaleik keppninnar þar sem það mætir liði Al Hilal frá Sádi Arabíu en þeir lögðu Flamengo í undanúrslitaleik í gær. Úrslitaleikurinn fer fram á laugardag.
Mest lesið Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti Öll börn eigi að fá að vera hluti af liðinu Sport Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Af hverju fékk Veigar Páll eins árs dóm og hvort fellur KA eða Þór? Sport Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Fótbolti Fleiri fréttir Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Nottingham Forest endaði taphrinuna Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Mark dæmt af Ronaldo og mark tekið af honum líka Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Matthías í stað Viktors við hlið Sölva Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Caroline tekur við af Donna með EM-landsliðið Er staða Alexander-Arnold innan liðsins að versna? „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Sjá meira