Jafnt í Lundúnarslagnum Arnar Geir Halldórsson skrifar 11. febrúar 2023 14:30 Í leikslok. vísir/getty Chelsea og West Ham skildu jöfn í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Báðum liðum hefur gengið erfiðlega upp á síðkastið og bar leikurinn þess merki í dag. Tveir af fjölmörgum nýliðum í liði Chelsea voru á bak við fyrsta mark leiksins þegar Joao Felix kom Chelsea yfir eftir undirbúning frá Enzo Fernandez á sextándu mínútu. Forystan entist gestunum stutt því Emerson, fyrrum leikmaður Chelsea, jafnaði metin fyrir West Ham eftir tæplega hálftíma leik og var staðan í leikhléi jöfn, 1-1. Bæði lið eltust við sigurmark í síðari hálfleik og virtist West Ham vera að tryggja sér sigur með marki Tomas Soucek á 83.mínútu en við nánari athugun í VAR, var markið dæmt af. Lokatölur 1-1 og West Ham áfram í bullandi fallbaráttu á meðan Chelsea þokast lítið í átt að efri hluta deildarinnar. Enski boltinn