„Rashford er einn af bestu sóknarmönnum í Evrópu“ Arnar Geir Halldórsson skrifar 13. febrúar 2023 07:00 Að springa út. vísir/getty Erik ten Hag, stjóri Man Utd, hrósaði Marcus Rashford í hástert eftir 0-2 sigur liðsins á Leeds United í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Rashford hefur verið magnaður í liði Man Utd að undanförnu; skorað fimmtán mörk í átján leikjum eftir að keppni hófst að nýju eftir HM í Katar í desember. „Hann verður að halda áfram að vera svona hungraður því annars er hættan á að þú slakir á. Þegar hann er í þessum gír getur hann haldið áfram að skora, leik eftir leik,“ segir Ten Hag. „Við þurfum að halda áfram að þjarma að honum en að lokum er þetta undir honum komið. Um leið og hann missir einbeitinguna mun hann hætta að skora, það er klárt.“ Ten Hag tók við stjórnartaumunum á Old Trafford í sumar og hafði markmið um að ná meiru út úr Rashford sem hefur mest skorað 22 mörk í öllum keppnum fyrir Man Utd á einu tímabili. Það gerði hann í 44 leikjum tímabilið 2019/2020 en Rashford er nú þegar kominn með 21 mark í 34 leikjum. „Hann er klárlega einn af bestu sóknarmönnum í Evrópu. Hann hefur hæfileikana og ég hef verið sannfærður um það síðan ég kom hingað. Ég var mjög spenntur fyrir því að vinna með honum og taldi mig geta náð meiru út úr honum.“ „Hann hefur svo marga góða eiginleika og mikla hæfileika og ég tel að hann geti bætt sig enn meira. Þegar hann leggur mikið á sig mun hann skora því hann getur skorað með báðum fótum og höfðinu,“ segir Ten Hag.
Enski boltinn Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira