Hlynur var hættur í landsliðinu og spilaði síðast með því í ágúst 2019. Hann hefur hins vegar gefið aftur kost á sér í það fyrir leikina gegn Spáni heima og Georgíu ytra.
Martin Hermannsson er enn frá vegna meiðsla og Hörður Axel Vilhjálmsson gaf sömuleiðis ekki kost á sér sökum meiðsla.
Ísland mætir Spáni í Laugardalshöllinni 23. febrúar og Georgíu í Tbílísi þremur dögum seinna. Svo gæti farið að sigur í leiknum gegn Georgíumönnum tryggi Íslendingum 3. sæti riðilsins og þar með sæti á HM.
Íslenski hópurinn
- Elvar Már Friðriksson · Rytas Vilnius, Litháen (63)
- Haukur Helgi Briem Pálsson · Njarðvík (73)
- Hilmar Smári Henningsson · Haukar (4)
- Jón Axel Guðmundsson · Victoria Libertas Pesaro, Ítalíu (23)
- Hlynur Bæringsson · Stjarnan (129)
- Kári Jónsson · Valur (30)
- Kristinn Pálsson · Aris Leuuwarden, Hollandi (15)
- Kristófer Acox · Valur (50)
- Ólafur Ólafsson · Grindavík (52)
- Ragnar Ágúst Nathanaelsson · Hamar (57)
- Sigtryggur Arnar Björnsson · Tindastóll (26)
- Styrmir Snær Þrastarson · Þór Þorlákshöfn (7)
- Tryggvi Snær Hlinason · Basket Zaragoza, Spáni (56)
- Þórir G. Þorbjarnarson · Ovideo, Spáni (9)
- Ægir Þór Steinarsson · CB Lucentum Alicante, Spáni (78)