Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Sindri Sverrisson skrifar 1. nóvember 2026 22:32 Max Verstappen og Lewis Hamilton náðu að vera á undan Kimi Antonelli í dag en báru hann svo á verðlaunapallinum því 3. sætið dugði Ítalanum til að tryggja sér heimsmeistaratitilinn. Verstappen og Hamilton þekkja það vel að verða heimsmeistarar en náðu því ekki eins ungir og Antonelli. Getty/Clive Rose Ítalinn tvítugi Kimi Antonelli varð í kvöld heimsmeistari í Formúlu 1 í fyrsta sinn. Hann er yngstur í sögunni til þess að verða heimsmeistari og fyrsti Ítalinn síðan árið 1953.
Sigur Antonelli, sem ekur fyrir Mercedes, er ákaflega sannfærandi því hann tryggði sér titilinn í Mexíkókappakstrinum í dag þrátt fyrir að enn séu fjórar keppnir eftir á árinu. Hann komst á verðlaunapall í dag með því að ná þriðja sæti, á eftir Lewis Hamilton sem varð annar og Max Verstappen sem náði þriðja sæti. Heyra mátti hljóðið í Antonelli þegar hann kom í mark en hann kom vart upp orði og heyrðist bara gráta enda tilfinningarnar miklar á þessari sögulegu stund. Lokin á keppninni, viðbrögð Antonelli og viðtal við hann má sjá í spilaranum hér að neðan. Klippa: Söguleg sigurstund Antonelli í Mexíkó Á undan Antonelli var Þjóðverjinn Sebastian Vettel sá yngsti í sögunni til að verða heimsmeistari, 23 ára gamall og 134 daga. Antonelli er 20 ára og 68 daga. Ítali hefur ekki orðið heimsmeistari síðan Alberto Ascari vann árið 1953 eða um miðja síðustu öld. Keppnin í dag var æsispennandi og viðburðarík frá byrjun. Lewis Hamilton hafði náð ráspól í fyrsta sinn í þrjú ár og þrjá mánuði en missti forystuna strax í byrjun þegar liðsfélagi hans hjá Ferrari, Charles Leclerc, kom sér fram úr honum með vafasömum hætti. Max Verstappen nýtti um leið tækifærið og komst í 2. sæti en Hamilton fór niður í það þriðja. Kimi Antonelli fagnaði vel með fjölskyldu sinni eftir að heimsmeistaratitillinn var í höfn í Mexíkó í dag.Getty/Mark Thompson Leclerc var svo refsað með fimm sekúndna refsingu en heyra mátti á Hamilton í talstöðinni að hann var brjálaður yfir framgöngu Leclerc. Hamilton taldi að hann ætti að gefa sætið sitt til baka eftir að hafa fengið að aka í drjúga stund með engan fyrir framan sig að trufla. Stöðva þurfti svo keppni um tíma þegar Valtteri Bottas lenti í slysi á 44. hring. Finninn klessti út í vegg á nokkrum hraða eftir skyndilega bilun í fjöðrunarbúnaði. Onboard with Valtteri Bottas for a sizeable crash at Turn 1 😱💥 He is out of the car and ok #F1 #MexicoGP https://t.co/XLqppzQCnL— Formula 1 (@F1) November 1, 2026 Þegar keppni hófst að nýju var Verstappen fremstur, Leclerc annar og Hamilton þriðji en Antonelli í fjórða sætinu eftir að hafa verið kominn fram úr Hamilton. Hamilton og Antonelli unnu sig svo fram úr Leclerc sem hafnaði í fjórða sætinu en Verstappen vann keppnina. Antonelli er nú með 380 stig þegar fjórar keppnir eru eftir en mikil spenna er í baráttunni um næstu sæti í stigakeppni ökumanna. Verstappen er með 261 stig í 2. sæti, Hamilton með 249 stig, George Russell 250 stig og Leclerc 245 stig.
Akstursíþróttir Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár „Mér finnst ég vera byggður öðruvísi“ Átti erfitt fyrsta tímabil en getur nú skrifað söguna Segir ekki mikil gæði vera hjá ökumönnum í Formúlu 1 Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari Kimi Antonelli á ráspólnum á morgun „Að lokum þurfum við að frelsa Kongó, frelsa Súdan, frelsa Sýrland og frelsa Palestínu“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Tætir í sig „siðferðislega óréttlætanlega“ ákvörðun Formúlu 1 Antonelli getur orðið yngsti heimsmeistari sögunnar í næstu keppni Formúla 1 snýr aftur til Afríku Hlustaði ekki á liðið og baðst afsökunar Fór fram úr Verstappen og svo fram úr sér Býður við skrifunum: „Ég er Satan“ Hamilton vonast til þess að keppa í Afríku Varað við miklum hita yfir kappakstrinum í Singapúr Kláraði að hjóla 420 km á fjórum dögum fyrir kappakstur Áföllin halda áfram að dynja á Russell Vill sjá breytingar svo það komi ekki annað klúður Hjólar yfir 350 kílómetra í næstu keppni Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Sjáðu ruglið í Formúlunni í morgun Verstappen vann skrautlega keppni Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Kunnugleg framlína í Malasíu Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Sjá meira