Lífið

Sindri er kokkur ársins

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Sindri Guðbrandur Sigurðsson hreppti titilinn Kokkur ársins 2023 í gær.
Sindri Guðbrandur Sigurðsson hreppti titilinn Kokkur ársins 2023 í gær. Mummi Lú

Sindri Guðbrandur Sigurðsson er kokkur ársins 2023. Sindri hreppti titilinn í gær eftir mjög sterka keppni.

Kokkur ársins 2023 fór fram í IKEA að þessu sinni. Eftir forkeppni á fimmtudag komust fimm matreiðslumenn áfram í úrslit. Verðlaunin voru þátttökuréttur í Nordic Chef of the Year 2024 fyrir Íslands hönd og 300 þúsund krónur í beinhörðum peningum.

Sindri Guðbrandur er liðsstjóri íslenska kokkalandsliðsins og leiddi það á síðustu heimsmeistarakeppni í Lúxemborg 2022. Sama ár lenti hann í öðru sæti í keppninni Matreiðslumaður Norðurlandanna.

Sindri segir að um mikinn heiður sé að ræða.Mummi lú

Hann segir í samtali við fréttastofu að þetta sé mikill heiður. 

„Þetta er algjör snilld, maður er enn þá að ná sér niður bara. Ég held að þetta hafi sjaldan verið jafnsterk keppni og í ár. Þannig að ég er enn þá að ná því að hafa unnið, ég var aldrei viss,“ segir hann brattur. Úrslitin hafi verið krefjandi.

Keppendur fengu að vita hvaða hráefni nota þyrfti í keppninni á föstudag og því naumur tími til stefnu. Í forrétt var akurhæna og akurhænuegg og í aðalrétt var sólkoli, toppkál og söl. Eftirrétturinn samanstóð af Omnom-súkkulaði og birkilíkjör.

Sindri Guðbrandur vinnur hjá Flóru veitingaþjónustu og kveðst spenntur fyrir komandi tímum.

„Ég var að opna veisluþjónustufyrirtæki með Sigurjóni Braga, sem vann kokkur ársins 2019, og við ætlum að vera í hinu og þessu: Veislum, elda í heimahúsum, pinnamat og öllu sem tengist matargerð.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.