Samstarf

Nike á Ís­landi frum­sýndi aug­lýsingu á for­sýningu AIR myndarinnar

Icepharma
Nike á Íslandi frumsýndi auglýsingu við upphaf sýningarinnar en um var að ræða fyrstu leiknu sjónvarpsauglýsingu sem Nike á Íslandi hefur framleitt. Myndir/Mummi Lú.
Nike á Íslandi frumsýndi auglýsingu við upphaf sýningarinnar en um var að ræða fyrstu leiknu sjónvarpsauglýsingu sem Nike á Íslandi hefur framleitt. Myndir/Mummi Lú.

Icepharma, umboðsaðili Nike á Íslandi, og Samfilm héldu glæsilega forsýningu á AIR bíómyndinni í Ásbergssalnum í Kringlunni fyrir páska.

Myndin fjallar um skókaupmanninn Sonny Vaccaro, sem leikinn er af Matt Damon, og hvernig hann náði að tryggja íþróttavöruframleiðandanum Nike samning við einn frægasta körfuboltamann allra tíma, sjálfan Michael Jordan.

Nike á Íslandi frumsýndi auglýsingu við upphaf sýningarinnar en um var að ræða fyrstu leiknu sjónvarpsauglýsingu sem Nike á Íslandi hefur framleitt. 

Klippa: Nike á Íslandi frumsýndi auglýsingu á forsýningu AIR myndarinnar

Auglýsingastofan KIWI kom að framleiðslu auglýsingarinnar ásamt starfsfólki íþróttasviðs og hönnunardeildar Icepharma. Jón Arnór Stefánsson, fyrrverandi landsliðsmaður í körfubolta, ljáði rödd sína við gerð auglýsingarinnar ásamt fríðu teymi íþróttafólks sem hefur komið að uppbyggingu vörumerkisins á Íslandi.

Jón Arnór Stefánsson, fyrrverandi landsliðsmaður í körfubolta. Hann ljáði rödd sína við gerð auglýsingarinnar ásamt teymi íþróttafólks sem hefur komið að uppbyggingu vörumerkisins hér á landi.

Meðal gesta voru Jón Arnór Stefánsson, Bjarni Guðjónsson framkvæmdarstjóri KR og eiginkona hans Anna María Gísladóttir, Karítas María Lárusdóttir þjálfari og Gylfi Einarsson, Kristján Jóhannsson einn af eigendum Icepharma, Gunnar Birgisson íþróttafréttamaður og Steinar Aronsson annar stjórnenda hlaðvarpsins Boltinn lýgur ekki. Gestir klæddust margir hverjir Jordan skóm við tilefnið.

Hér má sjá nokkrar myndir frá viðburðinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×