Innlent

Aðal­sóknar­fundur Digra­nes­kirkju kærður til úr­skurðar­nefndar Kirkju­þings

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Vísir/Vilhelm

Jón Svavarsson, sóknarbarn í Digranessókn, hefur sent úrskurðarnefnd Kirkjuþings ítrekun á kæru vegna kosningar sóknarnefndar Digraneskirkju á aðalsafnaðarfundi þann 18. apríl síðastliðinn.

Í erindi sínu, sem stílað er á Elsu Sigurlaugu Þorkelsdóttur, formann úrskurðarnefndarinnar, segir að umboð sem lögð voru fram á fundinum fyrir kosningu hafi verið ólögleg. 

Þá segist Jón vilja kæra aðkomu Bryndísar Möllu Elídóttur, prófasts í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra, „þar sem hún hafði óviðeigandi aðkomu að kosningunum með að staðfesta þennan ólöglega gjörning og er það krafa mín að prófastur verði áminntur um það athæfi“.

Jón krefst þess að kæran verði tekin til skoðunar tafarlaust og efnt til „löglegra kosninga“. Við inngang á þann kjörfund liggi fyrir kjörskrá „löglegra safnaðarbarna Digraneskirkju“, sem prófastur hafi synjað um fyrir síðasta aðalfund.

Frávísanir kærðar til umboðsmanns Alþingis

Jón var einn af þeim sem bauð sig fram í sóknarnefnd en var hafnað. Hann er stuðningsmaður Gunnars Sigurjónssonar, fyrrverandi sóknarprests í Digraneskirkju, sem var látin hætta störfum eftir að óháð teymi Þjóðkirkjunnar komst að þeirri niðurstöðu að hann hefði brotið gegn samstarfskonum sínum.

Í pósti sem Jón sendir á biskup, fjölmiðla og fleiri segir hann að kosningin á aðalfundinum hafi verið kærð til dómsmálaráðuneytisins, biskupsstofu, úrskurðarnefndar Kirkjuþings, prófasts, safnaðarstjórnar Digraneskirkju og sóknarprests.

Dómsmálaráðuneytið og biskup hafi svarað með frávísun en þær frávísanir hafi verið kærðar til umboðsmanns Alþingis.

Ljóst var á fyrrnefndum aðalfundi að tvær fylkingar tókust á; stuðningsmenn Gunnars og aðrir sem sögðust í samtali við Vísi vilja horfa fram á veginn. Síðarnefndi hópurinn mætti með nokkurn fjölda umboða, sem tekin voru til greina við kosningu nýrrar sóknarnefndar.

Í atkvæðagreiðslunni var frambjóðendum úr hópi stuðningsmanna Gunnars, sem fráfarandi formaður sóknarnefndar gerði tillögu um, hafnað með miklum meirihluta atkvæða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×