Eiginkona hans til 49 ára hélt að hann væri að atast í sér Aron Guðmundsson skrifar 6. maí 2023 11:45 Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Leeds United Vísir/Getty Sam Allardyce, betur þekktur sem Stóri Sam, stýrir Leeds United í fyrsta sinn í dag er liðið tekur á móti Manchester City í ensku úrvalsdeildinni.
Allardyce, sem hefur marga fjöruna sopið í knattspyrnuheiminum, fær það verkefni að reyna halda sæti Leeds United í deild þeirra bestu þegar að aðeins fjórar umferðir eru eftir af yfirstandandi tímabili.Í viðtali við Sky Sports segir Allardyce, sem margir héldu að væri hættur knattspyrnuþjálfun, frá því hvernig eiginkona hans trúði því ekki þegar að hann tjáði henni að kallið væri komið frá Leeds United.„Hún hélt að ég væri að atast í sér,“ segir Allardyce í viðtali við Sky Sports. Tækifærið til að taka við stjórnartaumunum hjá Leeds United hafi verið eitthvað sem hann vildi ekki láta fram hjá sér fara.Það var því með blessun eiginkonu hans, en þau hafa verið gift í 49 ár, sem Allardyce ákvað að stökkva til og reyna halda Leeds United í ensku úrvalsdeildinni.„Þó ég sé 68 ára gamall og líti út fyrir að vera gamall er enginn sem stendur mér framar í knattspyrnufræðunum. Hvorki Pep Guardiola, Jurgen Klopp eða Mikel Arteta. Þeir gera það sem ég geri og öfugt.“Allardyce hefur fulla trú á getu sinni sem knattspyrnustjóri, enda margreyndur í bransanum, og fyrsti leikur hans með Leeds United fer fram seinna í dag þegar að liðið tekur á móti Englandsmeisturum Manchester City.Hann veit af hættunni sem fylgir Manchester City, liði sem gæti með sínum leikmannahópi stillt upp tveimur sterkum liðum.Aðspurður hvort hann gæti leikið eftir afrek Guardiola hjá Manchester City var ekkert hik á Allardyce.„Auðvitað. Leikmennirnir gera þig að góðum knattspyrnustjóra og þjálfara. Þitt hlutverk er að geta átt í samskiptum við þessa leikmenn. Ég myndi eiga góðan nætursvefn ef ég væri með þessa leikmenn.“
Enski boltinn Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira