Greiðsluáskorun Skatturinn 16. maí 2023 05:00 Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar: Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til og með 15. maí 2023, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. maí 2023 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. maí 2023, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, gistináttaskatti, fjársýsluskatti, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, árgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á eftirlaun, ofgreiðslu stuðnings úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins, árgjaldi handhafa markaðsleyfis, veiðigjaldi og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru: Tekjuskattur og útsvar ásamt álagi á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, útvarpsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, auðlegðarskattur og viðbótar auðlegðarskattur, fjármagnstekjuskattur ásamt álagi á ógreiddan fjármagnstekjuskatt, ógreiddur tekjuskattur af reiknuðu endurgjaldi ásamt álagi, búnaðargjald, sérstakur fjársýsluskattur, sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki, jöfnunargjald alþjónustu, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er 13 þúsund kr. fyrir hvert fjárnám. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald, fjársýsluskatt, gistináttaskatt og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og kílómetragjald mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verð út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum. Reykjavík, 16. maí 2023 Ríkisskattstjóri Sýslumaðurinn á Vesturlandi Sýslumaðurinn á Vestfjörðum Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra Sýslumaðurinn á Austurlandi Sýslumaðurinn á Suðurlandi Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Suðurnesjum Mest lesið Fengu ekki að tjá sig og sektin helminguð Neytendur Magga í Pfaff: „Ég man meira að segja hvar fyrsti kossinn var“ Atvinnulíf Velgengni í New York: „Mér finnst ég ekkert hafa verið hér mjög lengi“ Atvinnulíf Vona að Musk takmarki tolla Trumps Viðskipti erlent Dagatalsmenningin: Rosa töff að vera með yfirbókaða dagskrá Atvinnulíf ASÍ fordæmir hækkun vaxta og Þórhallur sendi bankanum bréf Neytendur Fær nokkuð jákvæð viðbrögð þegar hann vandar sig í eldhúsinu Atvinnulíf Máttu ekki fullyrða að eldsneytið væri kolefnisjafnað Neytendur Vilja þvinga Google til að selja Chrome Viðskipti erlent EX90 sló í gegn á frumsýningu hjá Brimborg Samstarf Fleiri fréttir EX90 sló í gegn á frumsýningu hjá Brimborg Reykskynjara vantar of víða – Eldvarnarátak stendur nú yfir Ný útgáfa af konungi jeppans kominn til landsins Þola gluggarnir þínir íslenskt veðurfar? Greiðsluáskorun Eini sjö sæta rafbíllinn frá Peugot Snjallsímar tróna enn á toppnum í jólakönnun ELKO Frumsýning á Audi Q6 e-tron lúxussportjeppanum Stöðluðu húsin frá Límtré Vírneti hafa slegið í gegn Hvernig verður steypa græn? Land Cruiser 250: Frumsýning á laugardag Jólagjöf sem hefur slegið í gegn - Dineout gjafabréf Krafturinn keyrir alla skynsemi á kaf - Polestar 4 reynsluakstur Á Hrafnistu vinna öll að sama markmiði Slepptu biðröðinni og bókaðu dekkjaskiptin á nesdekk.is Hvað gefa vinnustaðir í jólagjöf? Fyrirtækjagjafir á Vísi Met mæting í Klinkuboð Ert þú á leið í framkvæmdir og veist ekki hvar þú átt að byrja? Októberfest í Bílheimum á laugardaginn Spennandi tækifæri í Mosfellsbæ Sjá meira
Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til og með 15. maí 2023, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. maí 2023 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. maí 2023, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, gistináttaskatti, fjársýsluskatti, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, árgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á eftirlaun, ofgreiðslu stuðnings úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins, árgjaldi handhafa markaðsleyfis, veiðigjaldi og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru: Tekjuskattur og útsvar ásamt álagi á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, útvarpsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, auðlegðarskattur og viðbótar auðlegðarskattur, fjármagnstekjuskattur ásamt álagi á ógreiddan fjármagnstekjuskatt, ógreiddur tekjuskattur af reiknuðu endurgjaldi ásamt álagi, búnaðargjald, sérstakur fjársýsluskattur, sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki, jöfnunargjald alþjónustu, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er 13 þúsund kr. fyrir hvert fjárnám. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald, fjársýsluskatt, gistináttaskatt og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og kílómetragjald mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verð út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum. Reykjavík, 16. maí 2023 Ríkisskattstjóri Sýslumaðurinn á Vesturlandi Sýslumaðurinn á Vestfjörðum Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra Sýslumaðurinn á Austurlandi Sýslumaðurinn á Suðurlandi Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
Ríkisskattstjóri Sýslumaðurinn á Vesturlandi Sýslumaðurinn á Vestfjörðum Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra Sýslumaðurinn á Austurlandi Sýslumaðurinn á Suðurlandi Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
Mest lesið Fengu ekki að tjá sig og sektin helminguð Neytendur Magga í Pfaff: „Ég man meira að segja hvar fyrsti kossinn var“ Atvinnulíf Velgengni í New York: „Mér finnst ég ekkert hafa verið hér mjög lengi“ Atvinnulíf Vona að Musk takmarki tolla Trumps Viðskipti erlent Dagatalsmenningin: Rosa töff að vera með yfirbókaða dagskrá Atvinnulíf ASÍ fordæmir hækkun vaxta og Þórhallur sendi bankanum bréf Neytendur Fær nokkuð jákvæð viðbrögð þegar hann vandar sig í eldhúsinu Atvinnulíf Máttu ekki fullyrða að eldsneytið væri kolefnisjafnað Neytendur Vilja þvinga Google til að selja Chrome Viðskipti erlent EX90 sló í gegn á frumsýningu hjá Brimborg Samstarf Fleiri fréttir EX90 sló í gegn á frumsýningu hjá Brimborg Reykskynjara vantar of víða – Eldvarnarátak stendur nú yfir Ný útgáfa af konungi jeppans kominn til landsins Þola gluggarnir þínir íslenskt veðurfar? Greiðsluáskorun Eini sjö sæta rafbíllinn frá Peugot Snjallsímar tróna enn á toppnum í jólakönnun ELKO Frumsýning á Audi Q6 e-tron lúxussportjeppanum Stöðluðu húsin frá Límtré Vírneti hafa slegið í gegn Hvernig verður steypa græn? Land Cruiser 250: Frumsýning á laugardag Jólagjöf sem hefur slegið í gegn - Dineout gjafabréf Krafturinn keyrir alla skynsemi á kaf - Polestar 4 reynsluakstur Á Hrafnistu vinna öll að sama markmiði Slepptu biðröðinni og bókaðu dekkjaskiptin á nesdekk.is Hvað gefa vinnustaðir í jólagjöf? Fyrirtækjagjafir á Vísi Met mæting í Klinkuboð Ert þú á leið í framkvæmdir og veist ekki hvar þú átt að byrja? Októberfest í Bílheimum á laugardaginn Spennandi tækifæri í Mosfellsbæ Sjá meira