Lífið

Heiðra minningu Njalla með tónleikum

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Njáll Þórðarson var hljómborðsleikari til margra ára hjá nokrum hljómsveitum. Hann lést eftir baráttu við krabbamein árið 2018.
Njáll Þórðarson var hljómborðsleikari til margra ára hjá nokrum hljómsveitum. Hann lést eftir baráttu við krabbamein árið 2018. Aðsent

Næstkomandi laugardag munu þrjár af vinsælustu sveitaballahljómsveitum landsins, Vinir vors og blóma, Land og synir og Sóldögg stíga á stokk í Háskólabíói og heiðra minningu hljómborðsleikara síns og vinar Njáls Þórðarsonar.

Hljómsveitirnar vilja með „dúndur hálfsitjandi sveitaballi á mölinni“ minnast góðs vinar, þakka Njalla fyrir vináttuna og fyrir framlag hans til tónlistarinnar.

Katla Njálsdóttir, söngkona, leikkona og dóttir Njáls Þórðarsonar, mun syngja á tónleikunum.Aðsent

Katla Njálsdóttir, söng- og leikkona og dóttir Njalla, mun stíga á stokk með hljómsveitunum sem æfa stíft um þessar mundir, sumar eftir langa pásu. Þá munu nokkrir valinkunnir hljómborðsleikarar skiptast á að fylla vandfyllt skarð Njalla og von er á fleiri leynigestum.

Kynnar á tónleikunum verða Guðjón Karlsson, betur þekktur sem Gói, og Hallgrímur Ólafsson, öðru nafni Halli Melló. 

Tónleikarnir verða teknir upp og sýndir síðar á árinu á Sjónvarpi Símans.

Allur ágóði tónleikanna rennur til Krafts stuðningsfélags í minningu Njalla og gefa allir sem koma að tónleikunum vinnu sína.

Að sögn skipuleggjenda er uppselt á tónleikana sem hafa verið í undirbúningi í yfir hálft ár utan hugsanlega ósóttra pantana. 

Njáll spilaði meðal annars fyrir Vini vors og blóma en hér má sjá hljómsveitina þegar hún var upp á sitt besta á tíunda áratugnum. Njáll er lengst til hægri á myndinni.Aðsent

„Lífið er partý“

Í tilefni tónleikanna sömdu þeir Gunnar Þór Eggertsson og Þorsteinn Ólafsson sumarsmellinn „Lífið er núna“ með góðri aðstoð Trausta Haraldssonar og Halldórs Gunnars Pálssonar Fjallabróðurs. 

Lagið er komið í spilun og á steymisveitur en þar er vitnað í orð Njalla sem má segja að eigi alltaf við: „Lífið er partý, verum góð hvert við annað, það veit enginn hvenær manni verður hent út“.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.