Gundogan hetjan þegar City varð bikarmeistari 3. júní 2023 16:10 Erling Haaland með FA-bikarinn. Vísir/Getty Manchester City er bikarmeistari í knattspyrnu eftir 2-1 sigur á nágrönnum sínum í Manchester United í úrslitaleik í dag. Ilkay Gundogan skoraði bæði mörk City í leiknum. Leikurinn í dag byrjaði heldur betur fjörlega því Ilkay Gundogan skoraði strax eftir þrettán sekúndur en aldrei hefur verið skorað jafn snemma í úrslitaleik. Fyrra metið átti Loui Saha sem skoraði eftir 25 sekúndur í úrslitaleik Chelsea og Everton árið 2009. THAT'S UNBELIEVABLE @IlkayGuendogan with an incredible volley for @ManCity, and it's the FASTER EVER #EmiratesFACup Final goal! pic.twitter.com/x95dNx9a8w— Emirates FA Cup (@EmiratesFACup) June 3, 2023 Lið Manchester City var sterkari aðilinn í fyrri hálfleiknum, hélt boltanum ágætlega en lítið var um opið færi. Þegar rúmar tíu mínútur voru til hálfleiks fékk Manchester United hins vegar vítaspyrnu. Aaron Wan-Bissaka ætlaði þá að skalla boltann inn í teig City en boltinn fór í höndina á Jack Grealish. Paul Tierney dómari fór í skjáinn og var ekki lengi að ákveða sig. Bruno Fernandes steig fram og skoraði af miklu öryggi framhjá Stefan Ortega í marki City en þetta var fyrsta markið sem liðið fékk á sig í FA-bikarnum á þessu tímabili. Ice cold @B_Fernandes8 bags from the spot #EmiratesFACup pic.twitter.com/9OURRxZoGH— Emirates FA Cup (@EmiratesFACup) June 3, 2023 Staðan í hálfleik var 1-1 en snemma í síðari hálfleiknum kom sigurmarkið. Boltinn barst þá til Ilkay Gundogan sem skaut að marki við vítateig og David De Gea náði ekki að verja. Skot Gundogan var ekki fast en De Gea sá boltann seint. CAPTAIN FANTASTIC @IlkayGuendogan with another magical volley #EmiratesFACup pic.twitter.com/HLCo4VpARt— Emirates FA Cup (@EmiratesFACup) June 3, 2023 Eftir þetta reyndi United hvað það gat til að jafna metin. John Stones bjargaði á marklínu undir lokin eftir atgang í teignum. Það var það næsta sem United komst til að skora og leikmenn Manchester City fögnuðu sigrinum vel í leikslok. Þetta er sjöundi bikarmeistaratitill City og liðið á nú möguleika á að vinna þrefalt á tímabilinu en næsta laugardag mætir City liði Inter í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Enski boltinn