Viðskipti innlent

Lukas tekur við af Agli sem hættir eftir 27 ára starf hjá Össuri

Atli Ísleifsson skrifar
Lukas Märklin og Egill Jónsson.
Lukas Märklin og Egill Jónsson. Össur

Egill Jónsson, framkvæmdastjóri framleiðslusviðs Össurar hf., hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu í lok árs, þar sem hann hyggst fara á eftirlaun.

Í tilkynningu frá Össuri segir að Lukas Märklin hafi verið ráðinn framkvæmdastjóri rekstrarsviðs og muni hann hefja störf síðar á árinu. 

„Lukas kemur til Össurar frá Straumann, leiðandi fyrirtæki á heimsvísu á sviði lækningatækja, þar sem hann hefur verið leiðtogi í yfir tvo áratugi, nú síðast sem yfirmaður rekstrarsviðs. Hann er vélaverkfræðingur að mennt með meistaragráðu frá ETHZ Swiss Federal Institute of Technology,“ segir í tilkynningunni.

Haft er eftir Sveini Sölvasyni, forstjóra Össurar, að Egill Jónsson hafi verið mikilvægur leiðtogi innan Össurar síðastliðin 27 ár. „Hann hefur tekið þátt í örum vexti félagsins og leitt umbreytingar á framleiðslu, gæða- og aðfangastýringu Össurar á heimsvísu. Össur framleiðir þúsundir vara í sex löndum og dreifimiðstöðvar á lykilmörkuðum sjá um vörudreifingu til yfir 100 landa. Fyrir hönd Össurar vil ég þakka Agli kærlega fyrir hans mikilvæga framlag og óska honum alls hins besta í framtíðinni.“

Þá segir Sveinn að Lukas Märklin komi nýr inn í framkvæmdastjórn félagsins sem reyndur leiðtogi á sviði framleiðslu á lækningatækjum. „Lukas mun styðja við frekari vöxt og verðmætasköpun Össurar og við hlökkum til að bjóða hann velkominn síðar á árinu,” segir Sveinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×