Það hefur oft verið opnað í ánni með vænum löxum en það er ekkert víst að það hafi jafn margir stórlaxar komið upp í fyrsta holli þar áður. Opnunin skilaði sautján löxum á land og það var eitthvað sem slapp en samt mun minna en maður ætti von á. Ástæðan er sú að í þessu holli voru þaulvanir veiðimenn sem eru ekki að taka á sínum fyrstu stórlöxum. Stærsti laxinn var 99 sm og svo kom annar 98 sm. Tveir 93 sm voru náðust líka og þetta eru allt eins og myndirnar bera með sér sannkallaðir stórlaxar.

Meðal veiðistaða sem voru að gefa má nefna Flatarbúð, Heimahyljir, Hólmabreiða, Katlar, Stekkjarnef og Bergsnös en þeir tveir síðast nefndu eru oftar en ekki með þeim gjöfulli. Þeir tilheyra neðra svæðinu eins og það er kallað eftir að svæðunum var breytt. Nú er gamla svæði fjögur kallað efra svæði og svæði eitt til þrjú rennu saman í það sem er kallað neðra svæði.
