Lífið

Ofur­­­fyrir­­­sæta á sex­tugs­aldri eignaðist son

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Naomi Campbell klæddist úlfajakka í janúar og fékk mikla gagnrýni fyrir gjörninginn. Nú er hún tveggja barna móðir.
Naomi Campbell klæddist úlfajakka í janúar og fékk mikla gagnrýni fyrir gjörninginn. Nú er hún tveggja barna móðir. Estrop/Getty Images

Enska ofurfyrirsætan Naomi Campbell greindi frá því í dag að hún hefði eignast son og væri orðin tveggja barna móðir, 53 ára að aldri.

Naomi Campbell eignaðist fyrsta barn sitt, dóttur, í maí 2021 skömmu fyrir 51 árs afmæli sitt og í dag greindi hún frá því á Instagram að hún hefði eignast son. 

Campbell sem er nýlega búin að fagna 53 ára afmæli hefur náð að halda óléttunni algjörlega leyndri.

Ekki er enn vitað hvenær eða hvernig drengurinn kom í heiminn né hvað hann heitir en nafn eldri systur hans, sem er rúmlega tveggja ára gömul, hefur heldur ekki verið gert opinbert.

Á myndinni sem Campbell birti á Instagram má sjá ungabarnið klætt í hvít föt frá Dolce & Gabbana og virðist eldri systirin halda í hönd barnsnis.

„Littla yndið mitt, þú mátt vita að þú ert elskaður ómælanlega og umkringdur ást frá augnablikinu sem þú heiðraðir okkur með návist þinni. Sönn gjöf frá Guði,“ skrifaði hún meðal annars við færsluna. 

Þá skrifaði hún einnig „Það er aldrei of seint að verða móðir.“


Tengdar fréttir

Naomi Campbell ánægð með edrú lífið

Naomi Campbell lét hafa eftir sér í viðtali á dögunum að hún væri mun ánægðari með lífið eftir að hún hætti að drekka áfengi. Hún telur að áfengi hafi haft mikil áhrif á skapsveiflur sínar, en fyrirsætan er þekkt fyrir mikinn skapofsa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.