Viðskipti innlent

Svens kærir á­kvörðun um ó­lög­mætar aug­lýsingar

Árni Sæberg skrifar
Bannið lýtur bæði að auglýsingum á samfélagsmiðlum og á verslununum sjálfum.
Bannið lýtur bæði að auglýsingum á samfélagsmiðlum og á verslununum sjálfum. Stöð 2/Egill

Forsvarsmenn nikótínpúðaverslunarkeðjunnar Svens hafa ákveðið að kæra ákvörðun Neytendastofu, þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að auglýsingar Svens og merkingar á verslunum séu í andstöðu við ákvæði laga um nikótínvörur, til áfrýjunarnefndar neytendamála.

Greint var frá því á dögunum að Neytendastofa hefði úrskurðað auglýsingar nikótínpúðaverslunarinnar Svens ólögmætar og veitt fyrirtækinu fjögurra vikna frest til að fjarlægja þær.

Um er að ræða tvær auglýsingar sem hafa verið birtar á samfélagsmiðlum. Annars vegar er það auglýsing þar sem fígúran Sven dansar með nikótínpúða undir vörinni og heldur á púðadós í annarri hendinni. Yfirskriftin er „með 10.000 kodda í vasanum.“

Hins vegar er það auglýsing með yfirskriftinni „Meira en 150 tegundir og 11 búðir“ þar sem verið sé að vísa til vöruúrvals verslunarinnar á nikótínpúðum.

Þá voru auglýsingamerki framan á verslunum, sem sýna stórar dósir, úrskurðaðar ólögmætar. En í örsmáu letri á þeim skiltum segir að dósirnar séu nikótínlausar.

Far jafnvel fyrir dómstóla

Í fréttatilkynningu frá Svens segir að ákveðið hafi verið að kæra ákvörðunina til áfrýjunarnefndar neytendamála.

„Svens ehf. leggur ríka áherslu á að starfsemi félagsins sé í samræmi við lög. Svens ehf. telur að umræddar auglýsingar og merkingar verslana félagsins brjóti ekki gegn ákvæðum laganna um nikótínvörur. Að mati Svens er nauðsynlegt að fá efnislega niðurstöðu í málið hjá áfrýjunarnefndinni og eftir atvikum dómstóla í framhaldinu,“ segir í tilkynningu.

Í samtali við Vísi segir Kristján Ra. Kristjánsson, einn eigenda Svens, að aðstandendur félagsins vilji að efnisleg niðurstaða fáist í málið þar sem greinilegt sé að munur er á lagatúlkun þeirra og yfirvalda. Því muni þeir alls ekki hika við að fara með málið fyrir dómstóla.

Þá segir hann að umræddar auglýsingar hafi verið teknar úr birtingu fyrir löngu síðan en að það séu atriði í ákvörðun Neytendastofu sem Svens muni ekki breyta fyrr en lokaniðurstaða fæst.


Tengdar fréttir

Aug­lýsingar Svens ó­lög­legar

Neytendastofa hefur úrskurðað auglýsingar nikótínpúðaverslunarinnar Svens ólögmætar og veitt fyrirtækinu fjögurra vikna frest til að fjarlægja þær.

Sven sem Jobs kom RÚV í klandur

Ríkisútvarpið var talið hafa gerst brotlegt við nýbreytt fjölmiðlalög með því að birta auglýsingar verslunarkeðjunnar Svens, sem selur einungis nikótínpúða svokallaða. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×