Innflutningur þotueldsneytis frá Indlandi aukist hröðum skrefum
![Eftir að ríkisstjórnir hins vestræna heims ákváðu að beita Rússa umfangsmiklum þvingunum á alþjóðamörkuðum á liðnu ári fór mikið magn af þeirri hráolíu sem áður flæddi til Evrópu frá Rússlandi að leita annað.](https://www.visir.is/i/081C84930CDD4AD110B7211F9B0E98A833022F1671B3E13107E0E22EB3BD7FAF_713x0.jpg)
Viðskiptaþvinganir Vesturveldanna gagnvart Rússlandi í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu í ársbyrjun 2022 hafa valdið mikilli uppstokkun í viðskiptum með hrávörur á alþjóðamörkuðum, meðal annars í kaupum Íslendinga á þotueldsneyti, að sögn hagfræðings. Hlutdeild fyrri birgja, sem voru einkum Bandaríkin, Bretland og Noregur, hefur þannig fallið hratt á sama tíma og Indland er farið að sjá Íslandi fyrir um fjórðungi alls þess þotueldsneytis sem var flutt til landsins á einu ári.