Stóraukið innflæði erlendra aðila gæti skýrt óvænta styrkingu krónunnar
Mikil aukning í gjaldeyrisinnflæði erlendra aðila til landsins er að líkindum helsta skýringin á snarpri styrkingu krónunnar undanfarna mánuði. Innflæðið hefur verið allt að þrefalt meira en fyrr á árinu og gæti meðal annars helst tengst uppbyggingu gagnavera í erlendri eigu eða uppgjöri skattaskuldbindinga vegna kaupa á hugverkaréttindum Kerecis.
Tengdar fréttir
Þrátt fyrir mikla hækkun er raungengið talið aðeins „örlítið“ yfirverðlagt
Á meðan sum útflutningsfyrirtæki eru í auknum mæli farin að kvarta undan skertri samkeppnishæfni vegna sögulega hás raungengis krónunnar þá sýnir nýlegt mat bæði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Seðlabanka Íslands að það er ekki mjög yfirverðlagt með hliðsjón af því sem samrýmist þjóðhagslegu jafnvægi. Sjóðurinn hefur ekki áhyggjur af sjálfbærni erlendrar stöðu þjóðarbúsins, þótt hún hafi veikst eilítið síðustu ár, en varar við því að hækki launakostnaður áfram umfram framleiðniaukningu muni það grafa undan stöðu útflutningsgreina.
Krónan styrkist þrátt fyrir metkaup lífeyrissjóða á gjaldeyri í júlí
Eftir að hafa haft afar hægt um sig í gjaldeyrisviðskiptum á liðnu ári hafa umsvif lífeyrissjóðanna margfaldast það sem af er þess ári. Þrátt fyrir metkaup sjóðanna í júlímánuði hélt gengi krónunnar áfram að styrkjast, en hlutdeild lífeyrissjóða í heildarviðskiptum á gjaldeyrismarkaði er lítil.
Gengisstyrking krónunnar að undanförnu kemur BlueBay „alls ekki á óvart“
Gengisstyrking krónunnar að undanförnu kemur einu stærsta skuldabréfastýringarfélagi Evrópu, sem er jafnframt umsvifamikill eigandi íslenskra ríkisskuldabréfa, ekki á óvart en hann telur að ef já-ið verður ofan í þjóðaratkvæðagreiðslunni um hvort hefja eigi á nýjan leik aðildarviðræður við ESB þá muni fjárfestar fara að veðja á samleitni vaxta við evrusvæðið.