Lífið

Ferðast með börnin um Evrópu í húsbíl í leit að nýju heimili

Jón Þór Stefánsson skrifar
Húsbíllinn verður heimil Sunnu og fjölskyldu hennar næstu mánuði er þau ferðast um Evrópu
Húsbíllinn verður heimil Sunnu og fjölskyldu hennar næstu mánuði er þau ferðast um Evrópu

Sunna Rós Baxter, tveggja barna móðir, hefur keypt sér húsbíl og ætlar að ferðast um Evrópu ásamt krökkunum í leit að góðum stað til að búa á.

„Ég er búin að kaupa húsbílinn og þá er það bara að finna heimili,“ segir hún. Ferðalagið er búið að vera í pípunum um nokkurt skeið, en til að byrja með ætlaði hún að ferðast um strandlengju Spánar. Hugmyndin hefur hins vegar stækkað og er áætlunin sú að heimsækja fleiri lönd í Evrópu.

Húsbíllinn verður heimili fjölskyldunnar næstu misseri. Þau ætla með Norrænu til Danmerkur í október. Þaðan ætla þau til Póllands þar sem bíllinn verður gerður upp og síðan halda þau til Spánar. Hún heldur að þau verði ábyggilega komin þangað í nóvember.

„Hugmyndin er að fá tilfinninguna fyrir bæjunum og finna hvar manni líður best. En ‚ég er ekkert endilega bundin við Spán eða einhver önnur lönd,“ segir Sunna sem útskýrir að hana langi að finna litla jörð eða hús í niðurníðslu sem hún geti gert upp á meðan hún búi í húsbílnum.

„Það er grófa planið,“ bætir hún við.

Til þess að eiga fyrir þessu ferðalagi hefur Sunna verið mjög dugleg að vinna og spara í sumar. „Ég ætla þess vegna bara að vera í fríi fyrstu mánuðina áður en ég byrja að vinna aftur.“

Þó hún segist ekki vera komin með neina ákveðna áætlun þá segist hún ætla að elta sólina. Þá langi hana til Austur-Evrópu í vor og jafnvel til Marokkó síðar meir.

Eitt af því sem Sunna þarf að hugsa fyrir eru börnin hennar, sem eru bæði á grunnskólaaldri. Yngra barnið er sex ára og það eldra fjórtán ára, en þau verða bæði í fjarnámi frá Íslandi á meðan ferðin stendur yfir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.