Flensburg með sigur í fyrstu umferðinni Smári Jökull Jónsson skrifar 24. ágúst 2023 19:02 Teitur Örn í leik með Flensburg. Teitur Örn Einarsson og samherjar hans í Flensburg unnu góðan fimm marka heimasigur gegn Hamburg þegar þýska úrvalsdeildin í handknattleik hófst í dag.
Flensburg hefur verið á meðal bestu liða í þýsku deildinni um árabil og er Teitur Örn eini Íslendingurinn á mála hjá félaginu. Heimamenn í Flensburg voru með yfirhöndina allan tímann í dag. Liðið leiddi 16-14 í hálfleik og komst sex mörkum yfir fljótlega í síðari hálfleiknum. Lokatölur 37-32 og Flensburg því að byrja vel í úrvalsdeildinni. Johannes Golla var markahæstur hjá Flensburg í dag með 10 mörk og Kay Smits skoraði 8. Teitur Örn Einarsson komst ekki á blað. Hjá Hamburg skoraði Casper Mortensen 7 mörk. Lærisveinar Heiðmars Felixsonar í Hannover Burgdorf unnu sætan útisigur á Erlangen en leikur liðanna fór einnig fram í kvöld. Hannover Burgdorf byrjaði betur og komst fjórum mörkum yfir snemma leiks og leiddu 16-13 í hálfleik. Í síðari hálfleik bitu hins vegar heimamenn frá sér. Þeir náðu forystunni í stöðunni 25-24 þegar rúmar fimm mínútur voru eftir og leikurinn í járnum. Gestunum tókst hins vegar að skora þrjú síðustu mörkin og tryggja sér góðan sigur. Lokatölur 27-24 og Heiðmar og lærisveinar hans geta því fagnað góðum sigri. Marius Steinhauser var markahæstur hjá gestunum með 8 mörk og Simon Jeppsson skoraði 6 fyrir Erlangen. Þýska úrvalsdeildin heldur áfram á morgun en þá verður Íslendingaliðið Magdeburg í heimsókn hjá Wetzlar.
Þýski handboltinn Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira