Bóksal tapaði 1,6 milljarði eftir að hafa selt stöður sínar í hlutabréfum
![Hjónin Bogi Þór Siguroddsson og Linda Björk Ólafsdóttir en þau er meðal annars eigendur Fagkaups, sem á Johan Rönning, sem hagnaðist um 2,2 milljarða í fyrra.](https://www.visir.is/i/1D2483C2057808E16A733821295D6623D94B2C9A115627799150BEBA6DA46ACB_713x0.jpg)
Fjárfestingafélagið Bóksal, sem var um skeið umsvifamikið á innlendum hlutabréfamarkaði, losaði um nær allar stöður sínar í skráðum félögum á liðnu ári samhliða því að greiða upp um fimm milljarða króna skuld við lánastofnanir. Félagið, sem er í eigu hjónanna Boga Þórs Siguroddssonar og Lindu Bjarkar Ólafsdóttur, tapaði tæplega 1,6 milljarði króna á árinu 2022.