Ekta ítalskar panino slá í gegn í hádeginu Grazie Trattoria 19. september 2023 14:29 „Við fórum sérferð til Napólí til að kynna okkur ekta ítalskar samlokur." Grazie Trattoria er veitingastaður vikunnar á Vísi. Veitingastaðurinn Grazie Trattoria á Hverfisgötu sérhæfir sig í ítalskri matargerð og hefur stimplað sig rækilega inn í veitingaflóru borgarinnar með ekta ítölskum mat á kvöldin. Ítalskar panino samlokur eins og þær gerast bestar eru nýjasta nýtt í hádeginu. „
Það má segja að Il Panino sé popup eldhús í hverju hádegi inni á Grazie,“ útskýrir Jón Arnar Guðbrandsson, eigandi Grazie Trattoria. „Við fórum sérferð til Napólí til að kynna okkur ekta ítalskar samlokur og bjóðum upp á átta mismunandi tegundir. Við bökum eftir pöntun úr súrdegi í eldofninum okkar svo brauðið er alltaf ferskt og svo velur fólk sér á lokuna. Við erum með allt frá þessari klassísku með tómötum, mozarella, parmaskinku og basil, yfir í þá frægustu á Ítalíu Porchetta með kryddaðri svínasíðu sem við kryddum að sjálfssögðu sjálf. Sú samloka sem hefur slegið algjörlega í gegn hjá okkur er Chicken Parmesan, sem er parmesaneldaður kjúklingur heitur á samlokuna með tómötum, mosarella og pestó,“ segir Jón en hann stendur sjálfur vaktina í hádeginu ásamt Eir konu sinni og Kristjáni Nóa, sem sér um að vel fari um alla. Ítalskir straumar falla vel í kramið Hugmyndin að Il Panino í hádeginu kviknaði eftir að troðfullt hafði verið inni á Grazie Trattorioa á hverju kvöldi frá opnun og því eina vitið að koma til móts við ítalíuþyrsta gesti. „Við opnuðum Grazie Trattoria í apríl í fyrra og höfum tekið á móti 150 til 200 manns nánast á hverju kvöldi síðan þá. Við erum fyrsta ekta ítalska trattorian sem opnar á Íslandi en trattoria eru stórir staðir sem ganga út á fjölskyldustemningu og klassískan ístalskan mat sem gerður er frá grunni. Stemmingin í hádeginu er léttari og hraðari, fólk getur borðað samlokurnar hér eða tekið þær með. Á kvöldin skiptum við um gír og erum með þjónustu í sal, bjóðum upp á ítölsk vín og kokteila. Í eldhúsinu hjá okkur ráða tvær ítalskar mömmur ríkjum. Þær gengu til liðs við okkur beint frá Ítalíu og eru að elda klassíska rétti eins og spagettí Carbonara, Ossobuco og ekta ítalskar pítsur sem bakaðar eru í eldofninum, bæði rauðar og hvítar. Pítsurnar með hvítu sósunni hafa slegið í gegn að ógleymdu Tiramisuinu sem þær útbúa eftir uppskrift frá ömmum og langmömmum þeirra,“ segir Jón. „Við erum hrikalega spennt fyrir komandi vikum. Stemningin hefur verið ótrúlega skemmtileg frá því við opnuðum og fólk er svo hrifið af staðnum, hann er svo mikið fyrir augað. Það er mikið lagt í innréttingar og einstök málverk máluð beint á veggina. Manni finnst eins og Grazie Trattoria hafi verið hérna árum saman,“ segir Jón. Grazie Trattoria er veitingastaður vikunnar á Vísi.
Matur Veitingastaðir Mest lesið Eignuðust stúlku með hjálp staðgöngumóður Lífið Vestfirski hryllingurinn: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert“ Bíó og sjónvarp „Auðvitað kom heilmikið rót á mig eftir þetta“ Lífið Eitt frægasta hús landsins enn á sölu Lífið Segir neytendur rænda við skókaup og bendir þeim á mikilvægan límmiða Lífið „Mig langaði að segja þessar sögur“ Lífið Páll Óskar féll í yfirlið og þríkjálkabrotnaði Lífið Fjölgar í „költinu“ hjá Kötu Odds og Þorgerði Lífið „Ósmekklegu plastblómin“ ekki frá forsetanum heldur RÚV Lífið Kaflaskil í tískunni þegar hann var tíu ára Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hátindar Öræfajökuls að vori Áttatíu ára sögu Múmínálfanna fagnað með nýrri línu Nýtt serum gegn hrukkum vegna sykurs Geðveikt fjör á Bessastöðum „Get leyft mér að borða mat sem ég áður forðaðist í félagslegum aðstæðum“ Gerum betur og setjum heilsuna í forgang „Í stuttu máli eru magasýrur okkur lífsnauðsynlegar“ Sannkölluð rokkveisla hjá SIGN í Gamla bíói Aldrei of mikið af G-vítamíni Bóndadagsleikur á Vísi - taktu þátt Allir viðburðir á Íslandi á einum stað á Vísi Góð tilfinning að endurheimta styrkinn Læra og njóta í endurmenntunarferðum KVAN Einstakur bíll sem erfitt gæti verið að toppa Hugræn endurforritun er toppurinn á tindinum Landsliðsmaðurinn Bjarki Már mælir með Nutrilenk Gold Vetrarfjallamennska – öryggisreglur Í strandbænum Sharm El Sheikh í Egyptalandi nýtur þú sólar, hlýju og menningar Láttu draumana rætast með Úrval Útsýn Bæjarfjallið Esjan - gönguleiðir og hjólastígar Náttúruleg leið til að endurbæta meltinguna! Heilsa og vellíðan nátengd góðu umhverfi Sjá meira