Forstjórinn sem endar stundum ein á dansgólfinu Rakel Sveinsdóttir skrifar 23. september 2023 10:00 B týpan Brynja Baldursdóttir, forstjóri Greiðslumiðlunar Íslands, viðurkennir að hún sefur eins lengi á morgnana og hún kemst upp með. Vísir/Vilhelm B týpan Brynja Baldursdóttir, forstjóri Greiðslumiðlunar Íslands, segir umferðateppuna úr Garðabæ alveg gefa frábærar gæðastundir á morgnana og þegar hún er spurð um tónlist og dans, segir hún það oftast frekar auðvelt að ná sér út á gólfið í sveiflu.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Ég vakna yfirleitt um sjö þrjátíu, sem er um það bil eins seint og ég kemst upp með. Ég hef alltaf verið B týpa og það hefur lítið breyst með aldrinum. En síðdegin eru þeim mun skilvirkari hjá mér. Ég vildi geta sagt að ég fari í ræktina eða hugleiði á morgnana en allar tilraunir til þess hafa fallið um sig sjálfar eftir eitt til tvö skipti. Nú síðast í vor þegar ég bókaði mig hjá einkaþjálfara hálf átta einu sinni í viku. Maðurinn minn benti mér þá kurteislega á að ég ætti nú að vera farin að þekkja sjálfa mig betur, sem reyndist alveg rétt ábending.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Það fyrsta sem ég geri er að blanda grænan vítamíndrykk fyrir okkur hjónin og strax þar á eftir geri ég góðan kaffibolla sem ég er stundum farin að geta drukkið í ró og næði eftir að börnin urðu sjálfbjarga á morgnana. Annars er bara að koma öllum af stað út í daginn og alveg ný morgunstund er að skutla syni mínum í Versló á leið minni í vinnuna. Umferðarteppan úr Garðabæ er að gefa alveg frábærar gæðastundir með honum á morgnana.“ Hvaða lag frá unglingsárunum fær þig alltaf út á dansgólfið? „Mér hefur alltaf þótt gaman að dansa svo það hefur nú ekki þurft mikið til og mörg lög sem koma mér á dansgólfið. Unfinished Sympathy með Massive attack og eiginlega allt með Snap og KLF virkar vel. Við æskuvinkonurnar þróuðum mjög töff dansspor með þessum lögum á sínum tíma sem eru alltaf tekin ef við erum saman. Ice Ice Baby með Vanilla Ice kemur mér líka alltaf í stuð en hefur af einhverjum undarlegum ástæðum ekki elst vel fyrir neinn nema mig svo ég er þá ein á dansgólfinu ef það er sett á.“ Brynju finnst haustin svo skemmtilegur tími því þá er atvinnulífið að keyrast aftur í gang og allir að koma vel undan sumri. Brynja elskar gott skipulag og segist hafa prófað ýmiss öpp en endar alltaf á því að styðjast við gamla góða Outlook-ið.Vísir/Vilhelm Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? „Við erum í stóru umbreytingarverkefni hjá Greiðslumiðlun Íslands en stærsta fyrirtækið í samstæðunni er Motus. Við höfum verið að byggja upp sterka innviði, bæði kerfi og öflugt starfsfólk, og erum mjög spennt að koma út með ýmsar nýjungar í kröfuþjónustu á næstu mánuðum. Þetta er sögulega frekar gamaldags bransi sem við erum að fara að umbylta og það er alltaf gaman að geta betrumbætt hlutina svo um munar. Akkúrat núna erum við svo í okkar árlegu uppfærslu á stefnunni okkar, helstu markmiðum og verkefnunum framundan. Það er alltaf skemmtilegur tími á haustin þegar allt er að keyrast í gang og fólk kemur ferskt undan sumri.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? Outlook stjórnar lífi mínu bæði í vinnu og einkalífinu. Mottóið er að ef það er ekki í Outlook þá er það ekki að fara að gerast. Ég elska gott skipulag og hef prófað alls konar forrit og öpp til að skipuleggja mig en á endanum er það bara gamla góða Outlook og tölvupósturinn sem virkar best fyrir mig.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Ég er oft komin í rúmið milli tíu og ellefu og sofna frekar fljótt eftir það. Þó að ég sé B týpa að upplagi þá hef ég orðið kvöldsvæfari með árunum og er reyndar mögulega örlítið ferskari á morgnana fyrir vikið.“
Kaffispjallið Greiðslumiðlun Tengdar fréttir „Í landinu er margt sem minnir á Ísland, ekki síst pólitíkin og umræðan í þjóðfélaginu“ Þórir Guðmundsson, upplýsingafulltrúi hjá fjölþjóðasveit Atlantshafsbandalagsins í Eistlandi, segist háma í sig fréttir eins og sykurfíkill sælgæti. Og svo margar séu þær fjölmiðlaáskriftirnar að hann eiginlega vilji ekki telja þær. 16. september 2023 10:00 Byrjar daginn á því að pissa í sig af hlátri og eldar í háum hælum Guðbjörg Ósk Friðriksdóttir þerapisti og höfundur Lærðu að elska þig eldar helst aldrei öðruvísi en í háhæluðum skóm og finnst lífið svo skemmtilegt að hún tímir því varla að fara snemma að sofa. 9. september 2023 10:00 Forstjórinn byrjar daginn á að leggjast aftur upp í rúm og á gaddadýnu Þórður Guðjónsson, forstjóri Skeljungs, segist vel gaddaður þegar hann fer fram úr og nýtur gæðastundar með eiginkonunni. Þá búinn að liggja á Shakti-gaddadýnu og hlusta á jóga-nidra hugleiðslu. EOS aðferðarfræðin í vinnunni er hans helsta skipulagstól. 2. september 2023 10:00 Er skrambi góð á grillinu og segir humarpítsuna vera besta Berglind Ólafsdóttir fjármálastjóri Hörpu er B týpan og á það því til að fara að búa til pestó, múslí eða sultu á kvöldin og enda þá með að fara of seint að sofa. Berglind segist skrambi góð á grillinu á sumrin og þar er það humarpítsa sem varð óvart til í Stykkishólmi um árið, sem er best. 8. júlí 2023 10:00 Á það til að „Asana“ yfir sig og til í minni rigningu en meiri sól Sigurður Svansson framkvæmdastjóri Sahara og einn stofnenda og eigenda, býr í Orlando með fjölskyldunni sinni og nýtir tímamismuninn klukkan fimm á morgnana fyrir símtöl til Íslands. Hann segir náttúrufegurðina á Íslandi magnaða en væri til í meiri sól og minni rigningu. Í Orlando er golfið áhugamál númer eitt. 1. júlí 2023 09:55 Mest lesið Hækka verðtryggða vexti og útskýra hvers vegna Viðskipti innlent ASÍ fordæmir hækkun vaxta og Þórhallur sendi bankanum bréf Neytendur Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Viðskipti innlent „Bankinn tekur höggið á sig að stórum hluta“ Viðskipti innlent Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Viðskipti innlent Hækka ekki verðtryggðu vextina Viðskipti innlent Kerecis fólk fjárfestir í flugi Viðskipti innlent Dagatalsmenningin: Rosa töff að vera með yfirbókaða dagskrá Atvinnulíf Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Atvinnulíf Knattspyrnukappi á Skaganum ráðinn fjármálastjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Dagatalsmenningin: Rosa töff að vera með yfirbókaða dagskrá Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Inngildingin: „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska“ Dæmi: „Tvær konur geta ekki unnið saman því einu sinni áttu þær sama kærasta“ „Unglingsárin voru kannski ekki mín heppilegustu ár“ „Pólitíkin er dugleg í þessu en einkageirinn kann þetta ekki nógu vel“ Að byggja upp vinnustað sem hræðist ekki breytingar Stærðin skiptir ekki máli Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen „Reglugerðin tekur gildi hvort sem menn hafa þetta hugrekki eða ekki“ Allt í steik: Samtalið við yfirmanninn „Okkur langar til að búa til nýja tegund af bjórmenningu“ „Eitthvað við kvöldin og nóttina sem ég heillast af“ Dýrara að gera ekkert: „Erum öll að pissa í sömu laugina“ Úrelt kerfi: „Síðan kom bara einhver bíll og tæmdi allt“ Sorp: Fólk að hoppa niður plastið í tunnunum til að þjappa því „Ekkert ósvipaður leikur og menn léku í bönkunum fyrir bankahrun“ „Fyrsta verk er án gríns að fá mér lýsi og tékka á Vísi“ Kosningaspenna á vinnustöðum og rifrildi um pólitík Sif Jakobs: „Ekta demantar eru nú einfaldlega ræktaðir“ „Hörðustu samningaviðræðurnar voru við yngsta fólkið Eitraður starfsmaður og góð ráð „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ B-týpa sem vill verða A en þarf tíma til að „morgna sig“ Fólki á helst að líða betur eftir vinnudaginn en þegar það mætti Slökkt á asanum: „Hljómar kannski auðveldlega en er það ekki“ Sjá meira
„Í landinu er margt sem minnir á Ísland, ekki síst pólitíkin og umræðan í þjóðfélaginu“ Þórir Guðmundsson, upplýsingafulltrúi hjá fjölþjóðasveit Atlantshafsbandalagsins í Eistlandi, segist háma í sig fréttir eins og sykurfíkill sælgæti. Og svo margar séu þær fjölmiðlaáskriftirnar að hann eiginlega vilji ekki telja þær. 16. september 2023 10:00
Byrjar daginn á því að pissa í sig af hlátri og eldar í háum hælum Guðbjörg Ósk Friðriksdóttir þerapisti og höfundur Lærðu að elska þig eldar helst aldrei öðruvísi en í háhæluðum skóm og finnst lífið svo skemmtilegt að hún tímir því varla að fara snemma að sofa. 9. september 2023 10:00
Forstjórinn byrjar daginn á að leggjast aftur upp í rúm og á gaddadýnu Þórður Guðjónsson, forstjóri Skeljungs, segist vel gaddaður þegar hann fer fram úr og nýtur gæðastundar með eiginkonunni. Þá búinn að liggja á Shakti-gaddadýnu og hlusta á jóga-nidra hugleiðslu. EOS aðferðarfræðin í vinnunni er hans helsta skipulagstól. 2. september 2023 10:00
Er skrambi góð á grillinu og segir humarpítsuna vera besta Berglind Ólafsdóttir fjármálastjóri Hörpu er B týpan og á það því til að fara að búa til pestó, múslí eða sultu á kvöldin og enda þá með að fara of seint að sofa. Berglind segist skrambi góð á grillinu á sumrin og þar er það humarpítsa sem varð óvart til í Stykkishólmi um árið, sem er best. 8. júlí 2023 10:00
Á það til að „Asana“ yfir sig og til í minni rigningu en meiri sól Sigurður Svansson framkvæmdastjóri Sahara og einn stofnenda og eigenda, býr í Orlando með fjölskyldunni sinni og nýtir tímamismuninn klukkan fimm á morgnana fyrir símtöl til Íslands. Hann segir náttúrufegurðina á Íslandi magnaða en væri til í meiri sól og minni rigningu. Í Orlando er golfið áhugamál númer eitt. 1. júlí 2023 09:55