Lífið

Einfalt útieldhús og tuttugu kíló fokin á keto

Stefán Árni Pálsson skrifar
Einstaklega vel heppnað útieldhús.
Einstaklega vel heppnað útieldhús.

Matarbloggarinn, viðskiptafræðingurinn og flugfreyjan Hanna Þóra Helgadóttir lét setja upp ótrúlega einfalt útieldhús hjá sér á pallinn sem hún notar allt árið.

En það er sett saman úr tilbúnum einingum og því ekki flókið eins og hún útskýrir í nýjasta innslagi af Íslandi í dag sem var á dagskrá á Stöð 2 í gærkvöldi. 

Þá hitti Vala Matt Hönnu og fóru þær yfir hvernig hún hefur útbúið einfaldan bar á skemmtilegan hátt.

Í eldhúsinu má einnig finna grill og eldofn.

Hanna Þóra er vel þekkt fyrir skrif sín um keto og sjálf losnaði hún við tuttugu kíló við að breyta mataræði sínu yfir í Keto.

Hér að neðan má sjá brot úr innslaginu en hægt er að sjá það í heild sinni inni á Stöð 2+.

Klippa: Einfalt útieldhús og tuttugu kíló fokin á keto





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.