Lífið

Kynnar Söngva­keppninnar þurfa ekki að kynnast

Bjarki Sigurðsson skrifar
Kynnarnir þrír eru Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, Sigurður Þorri Gunnarsson og Unnsteinn Manuel Stefánsson.
Kynnarnir þrír eru Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, Sigurður Þorri Gunnarsson og Unnsteinn Manuel Stefánsson. Vísir/Hulda Margrét

Kynna Söngvakeppni sjónvarpsins í ár þarf ekki að kynna fyrir hvert öðru enda eru þeir þeir sömu og í fyrra, það eru Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, Sigurður Þorri Gunnarsson og Unnsteinn Manuel Stefánsson. Lögin sem keppa í ár verða tilkynnt 27. janúar á næsta ári.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá RÚV. Þar segir að listrænir stjórnendur keppninnar verði Högni Egilsson, Selma Björnsdóttir, Samúel Bjarki Pétursson og Gunnar Páll Ólafsson.

Söngvakeppnin fer fram í febrúar og mars og verður með svipuðu sniði og síðustu ár. Tíu lög verða valin til þátttöku og etja kappi í beinni útsendingu þrjú laugardagskvöld. Fyrri undanúrslitin eru 17. febrúar, seinni undanúrslitin 24. febrúar og úrslitakvöldið er 2. mars þar sem framlag Íslands í Eurovision í Malmö í maí verður valið. 

Alls bárust 118 lög í keppnina og valnefnd hefur skilað inn niðurstöðu sinni. Framleiðendur keppninnar taka svo endanlega ákvörðun um hvaða tíu lög taka þátt. Eins og síðustu ár verður nokkrum höfundum boðin bein þátttaka í keppninni. Á næstunni verður haft samband við höfundana og í kjölfarið hefjast upptökur, hugmyndavinna og æfingar á atriðum.

Síðustu tvö ár hefur keppnin verið haldin í kvikmyndaverinu í Gufunesi. Söngvakeppnin 2024 verður á tveimur stöðum. Undanúrslitin fara fram í kvikmyndaveri Truenorth í Fossaleyni og úrslitin verða í Laugardalshöll. 

„Með þessu móti getum við tekið á móti helmingi fleiri áhorfendum en í Gufunesinu, bæði á svokallað fjölskyldurennsli 1. mars og svo á úrslitakvöldið 2. mars,“ er haft eftir Rúnari Frey Gíslasyni, verkefnastjóra sjónvarps hjá RÚV.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.