Í frétt ástralska ríkissjónvarpsins segir að lögreglumaðurinn, Dominic Francis Gaynor, hafi verið að vinna í móttöku lögreglustöðvar í Sydney þegar samstarfsmaður hans, Morgan Royston, hóf að spjalla við hann um kvikmyndina, þar sem Tom Cruise fer með aðalhlutverkið. „Ég spilli henni fyrir þér,“ sé haft eftir Royston í gögnum dómsmálsins vegna atviksins.
Gaynor er þá sagður hafa farið að hlæja og sagt Royston að spilla myndinni ekki. Því næst hafi hann stigið skrefinu lengra í gríninu, dregið upp skammbyssu sína og sagt: „Annars skýt ég þig!“
Hætti í löggunni
Fyrir dómi sagði Royston að honum hefði ekki þótt grín Gaynors neitt fyndið. Eftir atvikið hafi hann orðið mjög kvíðinn og lagst í þunglyndi.
Hann hefði alltaf dreymt um að verða lögreglumaður, en hann var enn á tímabundnum ráðningarsamningi hjá lögreglunni, en að eftir atvikið hafi hann neyðst til þess að gefa drauminn upp á bátinn.
„Ég hef algjörlega tapað trausti og aðdáun minni á lögreglunni í Nýja Suður-Wales. Þegar ég sé lögregluþjóna í dag finn ég fyrir þörf til að fylgjast með þeim og ganga úr skugga um að þeir séu ekki að munda skotvopn sín.“
Grín og gaman
Verjandi Gaynors sagði við réttarhöldin að það myndi kosta Gaynor starfið og æruna yrði hann sakfelldur fyrir athæfi hans. Hann hefði ekki haft neinn illan ásetning til þess að hræða Royston.
„Þetta er mál þar sem grín og gaman á vinnustaðnum hefur farið út af sporinu.“
Dómari í málinu ákvað að dæma Gaynor til hundrað klukkustunda samfélagsþjónustu og tveggja ára skilorðs.