Allt á uppleið hjá Núnez eftir að Suárez talaði við hann Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. nóvember 2023 15:31 Luis Suárez and Darwin Núnez láta í sér heyra á HM í Katar í fyrra. getty/Stu Forster Forráðamenn Liverpool báðu úrúgvæska framherjann Luis Suárez um að tala við landa sinn, Darwin, Núnez, þegar hann átti erfitt uppdráttar á fyrsta tímabili sínu í Bítlaborginni.
Liverpool keypti Núnez frá Benfica fyrir 85 milljónir punda í fyrra. Hann átti ekki fast sæti í liði Liverpool á síðasta tímabili en skoraði samt fimmtán mörk í öllum keppnum. Betur hefur gengið hjá Úrúgvæanum í vetur, hann hefur skorað sjö mörk og samvinna hans og Mohameds Salah hefur verið góð. Suárez, sem lék með Liverpool á árunum 2011-14, hefur greint frá því að Liverpool-menn hafi leitað til hans og beðið hann um að ræða við Núnez. „Hann hefur hæfileikana, tæknina og kraftinn sem hann er að sýna núna,“ sagði Suárez við ESPN í Argentínu. „Sem samherji kemur þetta mér ekki á óvart. Ég vissi hvað í honum bjó. Þegar hann átti erfitt uppdráttar hjá Liverpool í fyrra talaði ég við hann. Liverpool-menn báðu mig um að tala um hann. Ég varaði hann við og sagði honum um hvað enski boltinn snerist. Hann opnaði sig, sagði mér hvað hefði gerst og við töluðum um það. Sem samherji gleðst ég fyrir hans hönd.“ Suárez sagði jafnframt að hann vildi að Núnez tæki við treyju númer níu hjá sér í úrúgvæska landsliðinu. Suárez er markahæsti leikmaður í sögu þess með 68 mörk. Núnez hefur skorað fimm mörk í tuttugu landsleikjum.
Enski boltinn Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira