Vægi íslenskra hlutabréfa í eignasöfnum lífeyrissjóða ekki verið lægra í þrjú ár
![Úrvalsvísitala Kauphallarinnar er niður um 40 prósent á síðustu tveimur árum sem ræður hvað mestu um að vægi innlendra hlutabréfa hjá lífeyrissjóðum er orðið nokkuð minna en það hefur að jafnaði verið litið tíu ár aftur í tímann.](https://www.visir.is/i/19382719BCE3827F45EE4D1E3A595E986941B6C057693EBD0CFA5B8B4CEF49AC_713x0.jpg)
Hlutfall innlendra hlutabréfa í eignasöfnum lífeyrissjóða hefur fallið stöðugt undanfarin misseri samhliða meðal annars því að verðlækkanir á mörkuðum hér heima hafa verið mun meiri en þekkist erlendis og er vægi þess eignaflokks núna nokkuð undir meðaltali síðasta áratugs. Með auknum umsvifum lífeyrissjóða á íbúðalánamarkaði á nýjan leik er hlutfall sjóðsfélagalána í eignasöfnum sjóðanna á sama tíma búið að hækka skarpt.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/BCBAA05E0E8542F94BF901D5D143156DDEE4F5EED4FCB59288122E0101993753_308x200.jpg)
Markaðssókn banka á íbúðamarkaði kynti undir verðbólgu
Tilfærsla nýrra íbúðalána frá lífeyrissjóðum til banka, sem átti sér stað eftir að vextir voru lækkaðir verulega í upphafi heimsfaraldursins, hafði þau áhrif að peningamagn í umferð jókst og þar með verðbólguþrýstingur. Ólíkt útlánum lífeyrissjóða eru bankalán þess eðlis að nýtt fjármagn verður til við veitingu þeirra.
![](https://www.visir.is/i/016B1D09BFC7456F6F1D0A8241C2A9588F671289E2633CF44633AF723D13F92F_308x200.jpg)
Þurfum að læra af vandræðum Breta sem kæfðu hlutabréfamarkaðinn
Við þurfum að læra af vandræðum Breta sem gengur illa að fjármagn vöxt fyrirtækja þar í landi því það er búið að kæfa innlenda hlutabréfamarkaðinn. Í draumaheimi gætu íslenskir lífeyrissjóðir eflaust fjárfest meira og minna erlendis og á móti flæddi erlent fjármagn inn í íslenskt atvinnulíf. Því miður er það ekki þannig. Litla Ísland lendir yfirleitt neðarlega á forgangslista erlendra fjárfesta þótt það séu vissulega jákvæð teikn á lofti í þeim efnum, segir framkvæmdastjóri hjá Kauphöllinni.