Hamarsmenn semja við Jalen Moore og reka tvo leikmenn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. nóvember 2023 13:30 Jalen Moore í síðasta leik sínum með Haukum. Vísir/Anton Brink Jalen Moore var fljótur að finna sér annað félag á Íslandi eftir að Haukarnir létu hann fara fyrr í vikunni.
Moore hefur samið við Hamar og spilar því áfram í Subway deild karla. Hamarsmenn gerðu fleiri breytingar því félagið hefur látið tvo erlenda leikmenn fara eða Bandaríkjamanninn Maurice Creek og Spánverjann Jose Medina. Halldór Karl Þórsson, þjálfari Hamars, staðfesti þessar breytingar á liðinu í samtali við íþróttadeild. Moore er stigahæsti leikmaður Subway deildarinnar í vetur en hann skoraði 27,3 stig að meðaltali í sex leikjum með Haukum. Að auki var hann með flesta stolna bolta (3,33) og í þriðja sæti í stoðsendingum (8,1 í leik). Hamarsmenn eru á botni Subway deildarinnar og hafa tapað öllum sex leikjum sínum. Creek var með 18,5 stig og 4,1 stoðsendingu að meðaltali í leik en Medina var með 12,0 stig og 5,7 stoðsendingar í leik. Medina var með Hamarsliðnu í fyrra þegar liðið fór upp en þá var hann með 28,9 stig og 7,6 stoðsendingar að meðaltali í leik í 1. deildinni. Hann spilaði nú í fyrsta sinn í úrvalsdeildinni á Íslandi og náði ekki að skila því sama og undanfarin tímabil. Moore spilaði á móti Hamarsliðinu fyrr í vetur og var þá með þrennu í sigri en í þeim leik var hann með 19 stig, 12 stoðsendingar og 10 fráköst. Hamarsmenn vita því vel hvað hann getur. Fyrsti leikur Hamarsmanna eftir þessar breytingar verður á móti Grindavík í Smáranum í Kópavogi á laugardaginn.
Subway-deild karla Hamar Haukar Mest lesið Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Enski boltinn Tielemans biðst afsökunar Enski boltinn Leik lokið: Víkingur-Thun 3-2 | Víkingar fengu færin en sigur var ekki nóg Íslenski boltinn Myndir af Haaland á stórri kókaínsendingu Fótbolti Skoraði þrennu á 92 sekúndum og bíður eftir staðfestingu frá Guinness Fótbolti Fabrizio Romano að hætta Enski boltinn Draumur Bolvíkinga rætist gegn risunum í íslensku golfi Golf Fleiri styðja UEFA frekar en Infantino Fótbolti Ronaldo hughreystir Messi: „Stórt faðmlag til þín og þinna nánustu“ Fótbolti 86 kíló af marijúana fundust í liðsrútunni Fótbolti Fleiri fréttir Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Sjá meira