Viðskipti innlent

Allt grænt í Kaup­höllinni

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Hlutabréf allra skráðra fyrirtækja í Kauphöllinni nema tveggja hækkuðu í verði í dag.
Hlutabréf allra skráðra fyrirtækja í Kauphöllinni nema tveggja hækkuðu í verði í dag. Vísir/Vilhelm

Hlutabréf allra skráðra fyrirtækja í Kauphöllinni nema tveggja hækkuðu í verði í dag. Þrjú þeirra hækkuðu um meira en sex prósent og hlutabréf Icelandair hækkuðu mest, eða um 6,45 prósent.

Næst á eftir Icelandair var Kaldalón sem hækkaði um 6,2 prósent á fyrsta viðskiptadegi sínum á aðalmarkaði og svo kom Íslandsbanki með slétt sex prósent. Þau tvö sem hækkuðu ekki voru VÍS og Amaroq sem komu út á núlli eftir daginn.

Flugfélögin hækkuðu bæði talsvert og hlutabréf PLAY hækkuðu um rúm átta prósent í verði í dag á First North markaðinum.

Hlutabréf  Kviku og Reitis hækkuðu einnig um rúm þrjú prósent í dag og Marel var með stærstu veltuna gengi félagsins fór upp um fjögur prósent í 1,6 milljarða króna veltu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×