Forsetatíð George Weah senn á enda Atli Ísleifsson skrifar 21. nóvember 2023 09:02 George Weah hefur gegnt embætti forseta Líberíu frá árinu 2018. AP Joseph Boakai vann nauman sigur á forsetanum og knattspyrnumanninum fyrrverandi, George Weah, í síðari umferð forsetakosninganna í Líberíu sem fram fóru þarsíðustu helgi. Samkvæmt tölum frá landskjörstjórn hlaut Boakai 20.567 fleiri atkvæði en Weah.
Talsmenn Afríkusambandsins og Bandalags Vestur-Afríkuríkja (ECOWAS) hafa sérstaklega hrósað Weah fyrir að tala fyrir friðsamlegri valdayfirfærslu. Boakai, sem var varaforseti landsins á árunum 2006 til 2018, í forsetatíð Ellen Johnson Sirleaf, hlaut 50,64 prósent atkvæða í síðari umferð kosninganna, en Weah 49,36 prósent. Joseph Boakai var varaforseti landsins á árunum 2006 til 2018.AP Weah viðurkenndi ósigur síðastliðinn föstudag þegar búið var að telja 99,9 prósent atkvæða, en lokatölur voru gerðar opinberar í gær. „Líbería hefur unnið,“ sagði Weah á föstudaginn þegar hann var búinn að ræða við Boakai og óskað honum til hamingju með sigurinn. Weah hefur gegnt forsetaembættinu árið 2018. Hann varð fyrsti afríski knattspyrnumaður til að verða valinn knattspyrnumaður ársins hjá FIFA árið 1995, en á knattspynuferli sínum spilaði hann meðal annars með liðum á borð við Monaco, Paris St Germain og AC Milan.
Líbería Mest lesið Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Innlent Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun Innlent Mun kæra áburð um barnaperraskap til lögreglu Innlent „Ég sit ekki hér og hóta því að við séum á leiðinni í verkfall“ Innlent Intuens höfðar mál á hendur landlæknisembættinu Innlent Viðvörun gefin út á Bretlandseyjum vegna heilahimnubólgu Erlent Flugið er líflína milli byggða Grænlands Innlent Bein útsending: Opinn fundur um samgönguáætlun Innlent Fleiri fréttir Farage í klandri vegna myndbanda fyrir nýnasista og öfgamenn Banksy opinberaður, enn einu sinni Fjárframlög til BBC World Service aukin vegna upplýsingaóreiðu Black Cube sakað um njósnir fyrir kosningar í Slóveníu Viðvörun gefin út á Bretlandseyjum vegna heilahimnubólgu Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Olíuvinnslur rýmdar eftir árásir á eitt stærsta gassvæði heims Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Säpo varar við aukinni ógn frá Rússlandi Krefjast rúmlega sjö ára fangelsis yfir glæpaprinsinum Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Skárri staða í Álasundi Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur „Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Gengst við kókaínneyslu rétt fyrir kosningar Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Sjá meira