Fullorðið fólk á sín leyndarmál Krass bókaútgáfa 22. nóvember 2023 14:55 Nýlega kom út bókin Söngur Súlu 2 – Ást í mörgum myndum eftir Hrafnhildi Valgarðsdóttur, kom nýlega út hjá blaða- og bókaútgáfunni Krass en hún er framhald bókarinnar Söngur Súlu sem kom út árið 2013. Nýlega kom út bókin Söngur Súlu 2 – Ást í mörgum myndum eftir Hrafnhildi Valgarðsdóttur en hún er framhald bókarinnar Söngur Súlu sem kom út árið 2013.
Í fyrri bókinni segir frá því þegar Reykjavík var að breytast í borg um það leyti sem breski herinn, og síðar sá ameríski, var kominn til landsins. Þá streymdi fólk úr sveitum landsins til Reykjavíkur þar sem nóg var um vinnu og allt borgað í peningum. Bókin fjallar um fólkið í bröggunum og þar á meðal ungt par, foreldra Súlu, sem flytja í hálfan Breta-bragga og hlaða niður börnum. „Súla er eitt af þessum „braggabörnum,” segir Hrafnhildur. „Örlögin valda því að heimilið leysist upp og börnin fara öll í sitthverja áttina. Súla verður munaðarlaus og lendir á flækingi, flakkar milli alls kyns heimila og þá fær lesandinn innsýn í margs konar heimili og ástandið sem ríkti á þessum árum. Ég byggi lauslega á æskuminningum mínum þótt ég hafi ýkt og skáldað mjög því ólíkt æsku Súlu þá var mín æska ljúf.“ Söngur Súlu kom út árið 2013. Bókin kom út 2013 eins og fyrr segir og þar með fannst Hrafnhildi hún vera búin að ljúka sínum rithöfundarferli. „En það leitaði stöðugt á mig hálfgert samviskubit yfir að skilja við Súlu 16 ára gamla, aleina í leiguherbergi í Reykjavík og vinnandi í bakaríi. Mér fannst ég verða að fylgjast með henni og ákvað loks að skrifa aðra bók með undirtitilinn Ást í mörgum myndum, og ætlaði að láta líf hennar renna í gegn með þessari bók, en tókst ekki að komast lengra en þar til hún var orðin 18 ára.“ Rennur smám saman inn í skrautlegt heimilislífið Í nýju bókinni er Súla því 16 ára einstæð stelpa sem hefur lítið með sín mál að gera enda er veröldinni stjórnað af fullorðnu fólki. „En Súla er heppin því hún býr í húsi sem er fullt af góðu fólki og hún rennur smám saman inn í skrautlegt heimilislífið. Í húsinu er starfrækt bókaútgáfa og þar kynnist hún heimi bókanna. Andrúmsloft hússins mótar hana ásamt fólkinu sem þar býr.“ Í Söngur Súlu 2 - Ást í mörgum myndum, er Súla sextán til átján ára. Hún býr í húsi sem er fullt af góðu fólki og hún rennur smám saman inn í skrautlegt heimilislífið. En fullorðið fólk á sín leyndarmál og hefur lifað á ýmsan hátt og má þá helst nefna ástarmál þeirra sem sum eru skrautleg. „Bókin afhjúpar ýmislegt um þetta fólk um leið og hún fylgir Súlu gegnum brothætt líf einstæðings sem býr í litlu risherbergi og á lítið sem ekkert bakland. En þessi ár leiða hana inn á þá braut þar sem hún ákveður að helga líf sitt og spurningin er hvort ég muni fylgja henni eftir á þeirri braut með Söngur Súlu 3 eða ekki – það kemur í ljós.“ Hún segir nefnilega stanslausa vinnu vera í gangi í höfðinu á sér í sambandi við Súlu. „Alls kyns atburðir og persónur æða um kollinn á mér öllum stundum og ég held ég komist ekki hjá því að setjast við tölvuna og létta þessu af mér. Súla er orðin fullorðin og þarf að spjara sig og takast á við alls kyns vandamál sem því fylgja. Já, líklega skrifa ég þessa þriðju bók því hún er eiginlega orðin fullsköpuð í huga mér.“ Ætlaði alltaf að verða rithöfundur Hrafnhildur er fædd í Reykjavík 1948. Hún útskrifaðist frá Kennaraskólanum sem kennari 1971. „Eftir það vann ég alls kyns störf, bæði störf sem tengdust útgáfumálum en einnig kennslu þar sem ég var meira og minna viðloðandi í meira en 20 ár.“ Hún segist alltaf hafa ætlað að vera rithöfundur en komst fljótt að því að því fylgdu erfiðleikar og endalaus óvissa. „Ég var mjög ung þegar ég fékk birtar eftir mig smásögur í tímaritum og Lesbók Morgunblaðsins. Ég var sískrifandi, sendi handrit út og suður og tók þátt í samkeppnum þegar það bauðst. Stundum var ég heppin og stundum ekki. Það voru gefnar út bækur eftir mig og ég fékk bæði viðurkenningu og verðlaun, En það dugði þó skammt. Ég sótti um starfslaun árum saman sem rithöfundur en fékk aldrei. Loks gafst ég upp og hætti að sækja um, hætti að skrifa nema fyrir skúffuna.“ Hrafnhildur starfaði lengi við kennslu eins og áður segir. Á þeim tíma stríddu kennarar stöðugt við skort á efni til að fullnægja fjölbreyttum þörfum nemenda svo hún fór ósjálfrátt að útbúa alls kyns kennsluefni. „Með fram þessu fæddist þrautablaðið Hrafnaspark sem ég og Theódóra dóttir mín sköpuðum af mikilli kátínu. Loks ákvað ég að stofna sjálf útgáfu til að gefa út og halda utan um verk mín. Útgáfan Krass ehf. var stofnuð 1997 og gefur eingöngu út frumsamið efni eftir mig. Ég teygði mig í allar áttir í útgáfumálum og endurútgaf m.a. bækurnar um Kónga í ríki sínu sem enn í dag eru feiknar vinsælar. Einnig gerði ég verkefnabækur byggðar á þeim ásamt alls kyns kennsluefni sem sumt lifði en annað lognaðist út af eins og gengur. En Hrafnasparkið stóð af sér alla erfiðleika og lifir enn góðu lífi.“ Nánar upplýsingar á krass.is.
Bókaútgáfa Bókmenntir Mest lesið Netverjar koma „bomsum“ Ingu á Bessastöðum til varnar Lífið Að velja rangan maka: „Við gerum oft svo lítið úr ástarmálunum“ Áskorun Dóttir Elínar Mettu og Sigurðar komin með nafn Lífið 107 ára gömul og dansar eins og unglamb Lífið Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp „Ég var alltaf systir bræðranna sem dóu, dóttir bæjarstjórans eða dóttir ráðherrans“ Áskorun Lively í hart: „Þú veist að við getum grafið hvern sem er“ Bíó og sjónvarp Frægir fjölguðu sér árið 2024 Lífið Garðar málari og kvæntur yngstu ömmu landsins Lífið Fékk Sigurbjörn Árna til að lýsa óhappi í vinnunni Lífið Fleiri fréttir Hinn eini sanni konungur mættur í bíó Iceguys með opna búð og árita bókina „Lágspennubókmenntir“ List Sísíar sameinar húmor og hjartahlýju í nýju jólahefti Hátíðlegt en afslappað á tíu ára afmælinu Vinsælustu vörurnar í Signature 2024 Hundrað hugmyndir að gjöf fyrir hann á Já.is Fyrsti alvöru spænski veitingastaðurinn á Íslandi Finndu hina fullkomnu gjöf fyrir hana með vöruleit Já.is Keppnisskap kemur vinum í klandur „Það er enginn að ætlast til þess að ég mæti með lík“ Die Hard á jólamyndalista helsta skvísubókahöfundar landsins Við hagræðum speglum til að sýna það af lífi okkar sem við viljum sýna „Sigmundur Davíð er súrrealisti" Glansandi feldur merki um heilbrigði gæludýrsins - góð ráð fyrir sparibaðið Uppskrift að jólamatnum - þegar ekkert má klikka Matarboðin sem fólk man eftir Töfrandi og kynngimagnaður kvennaheimur opnast Óviðjafnanleg frásögn frá einstökum höfundi Gjafabréf sem búa til ógleymanlegar minningar í íslenskri náttúru Skáldskapur talaður lóðbeint út úr eigin hjarta „Hér hvílir sannleikurinn“ Gæsahúð þegar dansarar sviptu hulunni af goðsagnakenndum bíl Að ánetjast eldri konum Hafa stutt við bætta heilsu þjóðarinnar í aldarfjórðung Sérfræðingar Útilífs aðstoða við val á rétta búnaðinum Virka sömu orðskýringar á ömmur og unglinga? Kærleikskúla sem býr til ævintýri og góðar minningar Ein ákvörðun getur miklu breytt - ritdómur Jülevenner er jólasýning sem fer alltaf úr böndunum Sjá meira