„Síðustu nokkur ár í lífi mínu hafa mótað mig að þeirri manneskju sem ég varð á þeim skömmu tíma. Ég veit að lífið er allskonar og eitt er ég viss um, að sjaldnast er lífið er flatt. Ég er og verð ávallt þakklát foreldrum mínum fyrir að gefa mér þetta líf, því án þeirra væri ég hreinlega ekki til, í bókstaflegri merkingu orðins,“ skrifaði Vítalía og birti mynd af sér að fagna deginum.
Hún segir að með hækkandi aldri hafi hún öðlast meiri ró og lært að hún ein beri ábyrgð á eigin lífi.
„Óskin mín þetta árið er hreinlega að fá að eldast, þroskast, nærast og fyrst og fremst að finna ástæðu til að brosa oftar.“
Mál Vítalíu hefur verið áberandi í fjölmiðlum og þjóðfélagsumræðunni síðustu ár, eftir að hún greindi frá því á Instagram í október 2021 að hún hefði orðið fyrir kynferðisofbeldi þriggja manna í heitum potti í sumarbústað í september 2020 þar sem hún var stödd með líkamsræktarþjálfaranum Arnari Grant.
Það var svo í janúar í fyrra sem hún ræddi málið í Eigin konum, hlaðvarpi Eddu Falak, og sagði sína hlið á málinu. Málið var fellt niður sem og kæra þremenninganna gegn Vítalíu fyrir meinta fjárkúgun.