Veldu uppáhaldsmolana í konfektkassann þinn Nói Síríus 1. desember 2023 10:16 Á morgun laugardag getur fólk mætt í Hagkaup í Smáralind og valið eftirlætismolana sína í þar til gerða konfektkassa. Jólin eru tími hefða og hátíðleika og Nóa konfekt er fyrir löngu orðið ómissandi hluti af jólahefðum stórs hluta þjóðarinnar.
Þá er það einnig orðin venja hjá ansi mörgum að stelast í konfektkassann við hin ýmsu tækifæri, því öll eigum við okkar uppáhaldsmola. Nú gefst fólki tækifæri á að velja eingöngu uppáhaldsmolana í konfektkassa fyrir sjálft sig eða þau sem standa hjarta þess næst. Á morgun, laugardaginn, 2. desember, mun Nói Síríus, í samstarfi við Hagkaup, bjóða gestum í Hagkaup Smáralind upp á að velja sjálfir eftirlætismolana í þar til gerða konfektkassa. Eva Laufey Kjaran, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, hlakkar til samstarfsins. „Við erum mjög spennt að kynna þessa nýjung fyrir viðskiptavinum okkar í samvinnu við Nóa Síríus í desember. Konfekt er órjúfanlegur hluti af aðventunni og mjög spennandi að geta valið sinn uppáhalds mola þar sem smekkur manna er auðvitað misjafn. Því er kjörið tækifæri að koma og fylla öskjur af uppáhalds molunum. Við gátum ekki annað en sagt já við þessari skemmtilegu hugmynd frá Nóa og hlökkum til að fylgjast með hvernig móttökur súkkulaðibarinn fær hjá viðskiptavinum okkar,“ segir Eva Laufey. Helga Beck, markaðsstjóri Nóa Síríus, er bjartsýn á viðtökurnar „Það er gaman að geta boðið upp á þessa nýjung og ég hef fulla trú á því að fólk taki því fagnandi að geta valið innihald konfektkassans algjörlega út frá eigin smekk eða fyrir sínar uppáhalds manneskjur,“ segir Helga og bætir því við að verði móttökurnar góðar megi eflaust vænta meira af slíku á komandi árum. „Fyrst og fremst erum við þó þakklát fyrir þann heiður að spila jafn stóra rullu og raun ber vitni í hátíðarhöldum landsmanna og auðvitað er gaman að sjá hversu mörg okkar eiga sinn uppáhalds konfektmola.“ Eins og áður sagði verður hægt að kaupa sérvalið Nóa Konfekt í Hagkaup Smáralind á morgun, 2. desember, milli klukkan 12 og 16. Hjalti Lýðsson, súkkulaðimeistari hjá Nóa Síríus, mun þar fara fyrir föngulegum hópi starfsfólks og aðstoða fólk við valið.
Sælgæti Jól Jólamolar Mest lesið Fegin að hafa valið flottasta kjólinn fyrir óvænta trúlofun Tíska og hönnun Brad Pitt tjáir sig í fyrsta skipti um skilnaðinn Lífið Bakið er hætt að hefna sín Lífið samstarf Sjarmerandi miðbæjaríbúð listapars Lífið „Þetta tekur svo svakalega á sálartetrið“ Lífið A Country Night in Nashville kemur í Hörpu Lífið samstarf Kolféll fyrir New York en sér íslenska náttúru í hillingum Lífið Dreymir stanslaust kynlíf með öðru fólki en makanum Lífið Heillaði að læra hefðirnar í Húsó Lífið KK og Sinfó: Clint Eastwood mætti í Eldborg Gagnrýni Fleiri fréttir A Country Night in Nashville kemur í Hörpu Iðnaðarmaður ársins 2025 - Máni er kominn í úrslit Bakið er hætt að hefna sín Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorleifur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Eyjólfur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 – Róbert er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þór er kominn í úrslit Með andlit sem fleiri en bara mæður þeirra geta elskað Iðnaðarmaður ársins 2025 - Elsa er komin í úrslit Iðnaðarmaður ársins - Davíð Már er kominn í úrslit Stuðla að heilbrigði með lífrænum barnamat Komdu með í ævintýri til Ítalíu Viltu kynnast töfrum Taílands? Ný og endurbætt snyrtivörudeild opnuð í Hagkaup Pub Quiz hvar sem er, hvenær sem er! Fyrsta háhælahlaup Íslandssögunnar Ný hugsun í heimi brúnkuvara Fyrirtæki á Norðurlandi styðja SÁÁ Komdu með á ströndina — Ný sumarlína frá Moomin Arabia BAUHAUS býður þér í glæsilega afmælisveislu! Aldrei verið eins einfalt að bóka tíma Tork gaur: BMW neglir fallegan framenda Batinn á vefjagigt kom úr óvæntri átt Viltu vinna spennandi vinninga í vorleik Vísis? Tilbúnir réttir úr smiðju verðlauna kokks Sumarið er komið á Boozt Að eiga tæki frá Stihl er lífsstíll Persónuleg gjafakort sem renna aldrei út Viltu vinna skemmtilegar gjafir fyrir sumardaginn fyrsta? Ný fjarlækningaþjónusta fyrir sykursýkissjúklinga á Selfossi Sjá meira