Hefur ekki fyrirgefið Beckham og Ince fyrir að skemma HM-drauminn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. desember 2023 15:31 Kim Milton Nielsen rekur David Beckham af velli í leik Englands og Argentínu á HM 1998. getty/Adam Butler Michael Owen þolir ekki tvo fyrrverandi félaga sína í enska landsliðinu vegna dýrra mistaka þeirra á stórmóti.
Owen stökk fram á sjónarsviðið á HM 1998 og skoraði meðal annars frægt mark í leik gegn Argentínu í sextán liða úrslitum. Englendingar töpuðu leiknum í vítaspyrnukeppni og Owen er enn fúll út í tvo fyrrverandi samherja sína fyrir þeirra þátt í tapinu. „Fyrir það fyrsta finnst mér að David Beckham hefði ekki átt að fá rautt spjald fyrir að sparka í Diego Simeone en það skiptir ekki máli. Hann gerði mistök og vegna þess er ég gramur,“ sagði Owen. „Margir leikmenn fá bara eitt tækifæri á HM og hann gerði stór mistök og myndi viðurkenna það. Þetta átti þátt í því að við féllum úr leik sem er stórmál.“ Owen nefndi líka Paul Ince sem klúðraði sinni spyrnu í vítakeppninni gegn Argentínu. „Þú getur verið gramur út af mörgu ef þú getur notað það orð. Paul Ince klúðraði víti og ég er gramur út í hann fyrir að skjóta boltanum í þessa átt í staðinn fyrir hina, eins og ég er gramur út í Beckham fyrir að sparka í Simeone,“ sagði Owen. „Ég er gramur út í hann af mörgum ástæðum. Hann gerði mistök og þú hugsar að við hefðum unnið Argentínu ef hann hefði ekki gert þetta. Ég er handviss um að við hefðum unnið þá ellefu gegn ellefu því við vorum með betra lið.“ Owen lék 89 landsleiki fyrir England á árunum 1998-2008 og skoraði fjörutíu mörk.
Enski boltinn Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira