Þór vann stórsigur og Stjarnan komst aftur á sigurbraut Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 5. desember 2023 21:21 Þór og Stjarnan unnu sigra í Subway-deild kvenna í kvöld. Akureyri.net Þór Akureyri og Stjarnan unnu góða sigra í 12. umferð Subway-deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Þórsarar unnu öruggan 33 stiga sigur gegn Snæfellingum og Stjarnan komst aftur á sigurbraut með sex stiga sigri gegn Fjölni.
Stjörnukonur höfðu verið á miklu skriði undanfarnar vikur í Subway-deild kvenna, en liðið mátti svo þola tap gegn toppliði Keflavíkur í síðustu umferð. Liðið þurfti að hafa fyrir hlutunum gegn Fjölniskonum í kvöld og voru einu stigi undir í hálfleik, 39-38. Gestirnir frá Garðabænum mættu þó ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og skoruðu 25 stig gegn 13 stigum heimakvenna í þriðja leikhluta. Fjölniskonur klóruðu í bakkann í fjórða leikhluta en Stjarnan fagnaði að lokum sex stiga sigri, 66-72. Katarzyna Trzeciak var stigahæst í liði Stjörnunnar með 31 stig, en í liði Fjölnis var Korinne Campbell atkvæðamest með 27 stig. Þá vann Þór Akureyri öruggan 33 stiga sigur gegn Snæfelli á sama tíma, 65-98. Þrátt fyrir að vera sjö stigum undir eftir fyrsta leikhluta leiddu Þórsarar með 14 stigum í hálfleik og gerðu svo gott sem út um leikinn í þriðja leikhluta. Lore Devos átti frábæran leik fyrir Þórsara og skoraði 37 stig fyrir liðið.
Subway-deild kvenna Mest lesið Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Fótbolti Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fótbolti Á sama sviði og hetjurnar: „Verður ótrúlega skemmtilegt að upplifa“ Golf „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira