Körfubolti

Reiður LeBron lét stuðnings­menn Knicks heyra það

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
LeBron James er ekki dauður úr öllum æðum.
LeBron James er ekki dauður úr öllum æðum. vísir/getty

LeBron James spilaði sinn fyrsta leik fyrir Philadelphia 76ers í nótt og það var hundur í gamla manninum.

Fyrsti leikur Sixers var gegn meisturum NY Knicks í Madison Square Garden. Var mikið um dýrðir í höllinni fyrir leik enda fengu leikmenn meistarahringana sína og meistaraborðinn var hífður upp í rjáfur.

LeBron og félagar voru þó ekki neinu stuði til þess að skemma sér með Knicks og eyðilögðu teitið með því að sækja flottan sigur. James viðurkenndi að það hefði verið mjög sérstakt að ná því.

Áhorfendur í MSG eru oftar en ekki krefjandi. Láta vel í sér heyra og ekki alltaf á kurteisum nótum.

LeBron var ekki í stuði fyrir ruslatalið í áhorfendum og lét þá heyra það með látum. Það er enn mikið líf í James sem var að hefja sitt 24. tímabil í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×