Átján íslensk mörk í jafntefli í Íslendingaslag Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 10. desember 2023 15:46 Ómar Ingi Magnússon skoraði níu mörk fyrir Magdeburg í dag. Gregor Fischer/picture alliance via Getty Images MT Melsungen og Magdeburg skildu jöfn er liðin mættust í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, 29-29.
Heimamenn í Melsungen byrjuðu betur og höfðu yfirhöndina stærstan hluta fyrri hálfleiks. Liðið náði mest fimm marka forystu í stöðunni 14-9, en munurinn var þrjú mörk þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja, staðan 17-14. Gestirnir í Magdeburg voru þó fljótir að jafna metin í síðari hálfleik áður en Melsungen náði upp þriggja marka forskoti á nýjan leik í stöðunni 22-19. Gestirnir snéru leiknum þó aftur fljótt við og náðu forystunni þegar tæplega stundarfjórðungur var til leiksloka. Mest náði Magdeburg þriggja marka forystu áður en heimamenn náðu öðru áhlaupi og jöfnuðu metin í 28-28. Liðin skoruðu sitt markið hvort undir lok leiks áður en þau klikkuðu bæði á seinustu sóknum sínum og niðurstaðan varð jafntefli, 29-29. Ómar Ingi Magnússon var markahæstur íslensku leikmannanna í dag og skoraði níu mörk fyrir Magdeburg og Janus Daði bætti fjórum við fyrir liðið. Arnar Freyr Arnarsson skoraði fimm mörk fyrir Melsungen, en Elvar Örn Jónsson var ekki með vegna meiðsla á meðan Gísli Þorgeir Kristjánsson sat allan tíman á varamannabekk Magdeburg. Þá skoraði Oddur Gretarsson fimm mörk þegar Balingen-Weilstetten tapaði enn einum leiknum, að þessu sinni gegn Burgdorf. Lokatölur 29-25 gestunum í Burgdorf í vil. Daníel Þór Ingason skoraði eitt mark fyrir B-W í leiknum.
Þýski handboltinn Mest lesið Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Fótbolti Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira