Segir að United gæti þurft að bíða jafn lengi eftir titli og Liverpool Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. desember 2023 12:31 Leikmenn Manchester United niðurlútir eftir tapið fyrir Bournemouth um helgina. getty/Clive Brunskill Manchester United gæti þurft að bíða jafn lengi eftir Englandsmeistaratitlinum og Liverpool gerði á sínum tíma. Þetta segir sparkspekingurinn Ally McCoist.
United varð Englandsmeistari 2013 á síðasta tímabilinu undir stjórn Sir Alex Ferguson en hefur ekki verið nálægt að vinna titilinn síðan þá. McCoist óttast að stuðningsmenn United gæti þurft að bíða enn lengur eftir því að liðið vinni Englandsmeistaratitilinn á ný. „Með United, hvað gerirðu núna? Rekurðu Erik ten Hag? Ten Hag, José Mourinho, allir þessir frábæru stjórar með flotta ferilskrá hafa ekki virkað svo það er eitthvað meira en það. Þetta er kerfisbundið í gegnum félagið,“ sagði McCoist sem er ekki viss um að mikið breytist ef Sir Jim Ratcliffe eignast fjórðungshlut í United eins og flest virðist benda til. „Ég veit að það verða breytingar í æðstu stöðum en Liverpool beið í þrjátíu ár eftir titli. Ég er ekki að segja að það gerist en það kæmi ekki á óvart. Þetta er skrítin staða og það þarf mikið til að laga United sem er ekki það sem stuðningsmennirnir vilja heyra.“ United hefur tapað ellefu leikjum í öllum keppnum á tímabilinu, þar af sjö í ensku úrvalsdeildinni. United er á botni síns riðils í Meistaradeild Evrópu og mikið þarf að gerast til að liðið komist í sextán liða úrslit keppninnar. United tekur á móti Bayern München í kvöld og þarf að vinna þýsku meistarana og treysta á að FC Kaupmannahöfn og Galatasaray geri jafntefli á sama tíma til að komast upp úr riðlinum.
Enski boltinn Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira