Mikið hefur verið talað um þriðju vaktina svokölluðu en hugtakið lýsir því ólaunuða og oft vanmetna hugarálagi heimilisskipulagsins svo sem utanumhald og yfirsýn fremur en að framkvæma heimilisverkin sem myndi flokkast undir aðra vaktina.
Nafngreindi starfsmann og sigaði fylgjendum sínum á hann
Hjónin skrifuðu bók um þriðju vaktina sem kom út í vetur en verslunarrisinn Bónus tók þá ákvörðun að bókin yrði ekki seld þar á bæ um jólin. Þorsteinn birti í kjölfarið færslu á Instagram þar sem hann sagði bókinni hafa verið hafnað af „tilfinningalegum og huglægum ástæðum en ekki málefnalegum ástæðum.“
Í færslunni nafngreindi hann starfsmanninn sem átti að hafa tekið þessa ákvörðun og hvatti þúsundir fylgjendur sína til að senda á hann tölvupóst og krefja hann um að selja bókina í versluninni.
„Hann kaus að fara þessa leið“
Guðmundur Marteinsson segir að brosað sé að þessu innanhús og að það sé aldrei hægt að gera öllum til hæfis. „Hann kaus að fara þessa leið og gera þetta með þessum hætti. Það er bara hann. Ég stend bara með Ester,“ sagði hann í samtali við fréttastofu. Ester er nafn starfsmannsins sem hafi tekið ákvörðunina.
Guðmundur segir málið vera einfalt og að ákvörðunin hafi ekkert með tilfinningar viðkomandi starfsmanns að gera.
„Þetta snýst um það að við höfum lítið pláss fyrir bækur og þurfum að vanda valið á því sem er tekið inn. Við hlustum á útgefendurna og með hverju þeir mæla. Svo ef það koma fyrirspurnir frá kúnnum þá tökum við hana inn, þannig virkar kerfið. Við erum bara með takmarkaðan fjölda sem við getum tekið inn,“ segir hann.
Eftirspurnir ekki borist
Jafnframt segir hann að alltaf sé rúm til endurskoðunar á slíkum ákvörðununm ef kúnnar verslunarinnar biðji um að seld sé tiltekin bók eða vara en að slíkar eftirspurnir hafi ekki borist.
„Svo er það bara þannig að ef það er eftirspurn eftir bókinni frá neytendum, þá er það endurskoðað og metið en það hefur ekki verið í þessu tilfelli. Það hefur enginn beðið um þessa bók. Það er staðan,“ segir Guðmundur.