Frasabókin er svarti foli þessarar vertíðar Jakob Bjarnar skrifar 19. desember 2023 13:56 Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson eru þeir sem helst hafa komið á óvart með sinni Frasabók. vísir/bjarki Ef pakkinn þinn líkist bók þá eru mestar líkur á að í honum leynist Arnaldur, Yrsa eða Ólafur Jóhann. Þessi þrjú eiga mest seldu skáldverk ársins samkvæmt Bóksölulista Félags íslenskra bókaútgefenda.
Þetta segir Bryndís Loftsdóttir framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda en Vísir birtir nú fjórða metsölulista ársins og kannski þann sem mestu máli skiptir. Vandið valið Nú er baráttan um athygli bókakaupenda að harðna og taugar höfunda og útgefenda þandar. En Bryndís setur sig í heimspekilegar stellingar þegar hún rýnir í listann eins og hann liggur fyrir. „Ég veit ekki til þess að gerðar hafi verið rannsóknir á vægi metsölulista á kauphegðun. Við lifum auðvitað á algóritmiskum tímum þar sem þjónusta gengur út á að koma söluvöru með sem allra fljótlegasta hætti í hendur viðskiptavina svo það eina sem þeir þurfi að hugsa út í sé að ganga frá greiðslu,“ segir Bryndís. Hún er reyndar óstöðvandi og það er erfitt að skauta hjá því að í orðum hennar gæti örlítillar bölsýni: „Mannleg samskipti eru hverfandi og vöruuppstillingar, hvort sem er í verslunum eða á vefsíðum miða allar í þessa átt. En þeir eru sem betur fer enn til, þessir eftirsóttu ástvinir sem snúa á kerfið, dvelja drjúga stund við bókaborðin, laumast til að lesa svolítið í stökum bókum, jafnvel heilu kaflana og leggja sig verulega fram við að velja bók sem telja megi að muni geðjast hinum heppna lesanda en koma honum þó jafnframt á óvart og víkka þannig sjóndeildahring viðkomandi.“ Aldrei meira gefið út En hvað er svo títt? Frasabókin og Bílar í lífi þjóðar teljast til hinna svörtu fola í ár, að sögn Bryndísar; það eru þær bækur sem helst koma á óvart á bóksölulistanum. En þær ná þó ekki að ógna þrítugustu Útkallsbók Óttars Sveinssonar, sem líkt og svo ótal oft áður er mest selda bókin í flokki fræðirita og frásagna. Bryndís Loftsdóttir framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda setur sig í heimspekilegar stellingar og spáir í spilin. Nú er svo stutt til jóla að búast má við því að þessir listar sem hér birtast kunni að hafa nokkur áhrif á hvernig fer þegar upp verður staðið.vísir/vilhelm „Stefán Máni, Eva Björg, Vilborg Davíðsdóttir og Eiríkur Örn eru öll að stækka lesendahóp sinn umtalsvert þetta árið en hafa ber í huga að útgáfa íslenskra skáldverka var með fjörugasta móti, líklega milli 80 og 90 verk þegar allt er talið, svo samkeppnin hefur verið hörð. Að auki eru svo að koma út margar skotheldar þýðingar sem enginn alvöru bókaunnandi ætti að láta fram hjá sér fara.“ Skorar á fyrirtæki og jólasveina Bryndís lýkur orðum sínum á því að skora á íslensk fyrirtæki, að bæta nú bókum við jólapakka starfsfólks. „Það er góð þyngd í þeim, þær pakkast vel og svo styður lesturinn auðvitað við framgang og þróun íslenskrar tungu. Þá er mjög mikilvægt að hafa í huga að gefa ekki öllum sömu bókina, gera frekar svolítið lottó úr þessu þannig að einhver spenna verði við tréið á sunnudaginn. Skáldverk, þýðingar, fræðibækur, ljóð, matreiðslubækur, fjölskyldubækur, tarot lestur og ævisögur.“ Bryndís vill bæta við þessa áskorun sína jólasveinum, að þeir verði djarfhuga í vali sínu. „Starfsfólk getur svo skipst á bókunum og rætt í kaffitímum langt fram á næsta ár. Já og svo það sé sagt, það er ekkert að því að gefa körlum bækur eftir konur.“ 20 mest seldu bækurnar 11.-17. desember Sæluríkið - Arnaldur Indriðason Orri óstöðvandi - jólin eru að koma - Bjarni Fritzson Frýs í æðum blóð - Yrsa Sigurðardóttir Snjór í paradís - Ólafur Jóhann Ólafsson Útkall Mayday - erum að sökkva - Óttar Sveinsson Lára fer á jólaball - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan Hvítalogn - Ragnar Jónasson Borg hinna dauðu - Stefán Máni Frasabókin - Íslensk snjallyrði við hvert tækifæri - Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson Lára missir tönn - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan Heim fyrir myrkur - Eva Björg Ægisdóttir Bílar í lífi þjóðar - Örn Sigurðsson Bannað að drepa - Gunnar Helgason, myndh. Rán Flygenring Syngdu vögguvísur með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. A. Aleqsanian og E. Nazaryan Aðeins fleiri Pabbabrandarar - Þorkell Guðmundsson Blæja (Bluey) - Góða nótt leðurblaka - Þýð. Andri Karel Ásgeirsson Salka - Hrekkjavakan - Bjarni Fritzson Gleðilega jólahátið, þrautabók – Unga ástin mín Land næturinnar - Vilborg Davíðsdóttir Sveindís Jane - Saga af stelpu í fótbolta - Sveindís Jane Jónsdóttir Skáldverk Sæluríkið - Arnaldur Indriðason Frýs í æðum blóð - Yrsa Sigurðardóttir Snjór í paradís - Ólafur Jóhann Ólafsson Hvítalogn - Ragnar Jónasson Borg hinna dauðu - Stefán Máni Heim fyrir myrkur - Eva Björg Ægisdóttir Land næturinnar - Vilborg Davíðsdóttir Náttúrulögmálin - Eiríkur Örn Norðdahl DJ Bambi - Auður Ava Ólafsdóttir Valskan - Nanna Rögnvaldardóttir Deus - Sigríður Hagalín Björnsdóttir Duft - Söfnuður fallega fólksins - Bergþóra Snæbjörnsdóttir Ból - Steinunn Sigurðardóttir -15. Dauðadjúp sprunga - Lilja Sigurðardóttir -15. Maðurinn frá São Paulo - Skúli Sigurðsson Jólabókaklúbburinn - Sarah Morgan, þýð. Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir Miðnætti í Litlu jólabókabúðinni - Jenny Colgan, þýð. Helga Soffía Einarsdóttir Til hamingju með að vera mannleg - Sigríður Soffía Níelsdóttir Heimsmeistari - Einar Kárason Kjöt - Bragi Páll Sigurðarson Fræðirit, handbækur og ævisögur Útkall Mayday - erum að sökkva - Óttar Sveinsson Frasabókin - Íslensk snjallyrði við hvert tækifæri - Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson Bílar í lífi þjóðar - Örn Sigurðsson Aðeins fleiri Pabbabrandarar - Þorkell Guðmundsson Afi minn stríðsfanginn - Elín Hirst Forystufé og fólkið í landinu - Guðjón Ragnar Jónasson og Daníel Hansen Í eldhúsinu með Hrefnu Sætran - Hrefna Sætran Ullaræði: Villahullu - Heli Nikula, þýð. Guðrún Hannele Henttinen Kynlegt stríð - Ástandið í nýju ljósi - Bára Baldursdóttir Morðin í Dillonshúsi - Sigríður Dúa Goldsworthy Björn Pálsson: Flugmaður og þjóðsagnapersóna - Jóhannes Tómasson Hekla - Elsa Harðardóttir Heiðarprjón - Lene Holme Samsøe, myndh. K. Rohrberg, þýð. Ásdís Sigurgestsdóttir og Guðrún B. Þórsdóttir Hetjudáðir á hafi úti - Steinar J. Lúðvíksson Ég verð aldrei ungfrú meðfærileg - Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir Jökulsævintýrið - Jakob F. Ásgeirsson Gangandi bassi Endurminningar djassmanns - Tómas R. Einarsson Hugrekki til að hafa áhrif - Halla Tómasdóttir Helvítis matreiðslubókin - Ívar Örn Hansen og Þórey Hafliðadóttir Krossgátur Morgunblaðið bók 14 - Edda útgáfa Barna- og ungmennabækur Orri óstöðvandi - jólin eru að koma - Bjarni Fritzson Lára fer á jólaball - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan Lára missir tönn - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan Bannað að drepa - Gunnar Helgason, myndh. Rán Flygenring Syngdu vögguvísur með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. A. Aleqsanian og E. Nazaryan Blæja (Bluey) - Góða nótt leðurblaka - Þýð. Andri Karel Ásgeirsson Salka - Hrekkjavakan - Bjarni Fritzson Gleðilega jólahátið, þrautabók - Unga ástin mín Sveindís Jane - Saga af stelpu í fótbolta - Sveindís Jane Jónsdóttir Jólasyrpa 2023 - Walt Disney Dagbók Kidda klaufa 17 - Rokkarinn reddar öllu - Jeff Kinney, þýð. Helgi Jónsson Fótboltastjörnur - Messi er frábær! - Simon Mugford, þýð. Guðni Kolbeinsson Blæja (Bluey) -Límum þetta! - Límmiðabók Risaeðlugengið 5 - Sæskrímslið - Lars Mæhle, myndh. Lars Rudebjer Fótboltaspurningar 2023 - Guðjón Ingi Eiríksson Eldur - Björk Jakobsdóttir, myndh. Freydís Kristjánsdóttir Verstu gæludýr í heimi - David Walliams Skólaslit 2 - Dauð viðvörun - Ævar Þór Benediktsson, myndh. Ari H.G. Yates Snúum og leikum, teningaspil - Þýð. Andri Karel Ásgeirsson Fótboltastjörnur - Mbappé er frábær! - Simon Mugford, þýð. Guðni Kolbeinsson Uppsafnaður listi frá áramótum Sæluríkið - Arnaldur Indriðason Frýs í æðum blóð - Yrsa Sigurðardóttir Orri óstöðvandi - jólin eru að koma - Bjarni Fritzson Lára missir tönn - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan Lára fer á jólaball - Birgitta Haukdal, myndh. Anahit Aleqsanian og Elen Nazaryan Snjór í paradís - Ólafur Jóhann Ólafsson Útkall Mayday - erum að sökkva - Óttar Sveinsson Hvítalogn - Ragnar Jónasson Frasabókin - Íslensk snjallyrði við hvert tækifæri - Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson Borg hinna dauðu - Stefán Máni Syngdu vögguvísur með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal, myndh. A. Aleqsanian og E. Nazaryan Líkaminn geymir allt: hugur, heili, líkami og batinn eftir á - Bessel van der Kolk, þýð. Hugrún Hrönn Kristjánsdóttir og Arnþór Jónsson Bílar í lífi þjóðar - Örn Sigurðsson Bannað að drepa - Gunnar Helgason Hugrekki til að hafa áhrif - Halla Tómasdóttir Sveindís Jane - Saga af stelpu í fótbolta - Sveindís Jane Jónsdóttir Heim fyrir myrkur - Eva Björg Ægisdóttir Salka - Hrekkjavakan - Bjarni Fritzson Blóðsykursbyltingin - Jessie Inchauspé, þýð. Nanna Rögnvaldardóttir Blæja (Bluey) - Góða nótt leðurblaka - Þýð. Andri Karel Ásgeirsson
Bókaútgáfa Bókmenntir Jól Tengdar fréttir Útkallsbók í topp tíu eins og svo oft áður Það er helst að telja megi til tíðinda hversu tíðindalaus Bóksölulisti bókaþjóðarinnar er, eftir aðra helgi desember mánaðar. 12. desember 2023 11:00 Orri óstöðvandi sækir að kónginum Nýr bóksölulisti lítur dagsins ljós. Menn eru að koma sér fyrir. Eins og oft áður er Arnaldur Indriðason efstur, bæði í sölu þeirrar viku sem listinn tekur til sem og á uppsöfnuðum lista frá áramótum. En rithöfundar eru að koma sér fyrir á listum og skapa sér vígstöðu. 5. desember 2023 11:58 Arnaldur á toppnum og fátt fær því breytt Þá lítur fyrsti jóla-bóksölulisti Félags íslenskra bókaútgefenda ljós. Listi vikunnar nær yfir tímabilið 1.-26. nóvember en fram að jólum verður listinn svo tekinn saman vikulega. 29. nóvember 2023 12:00 Mest lesið Að velja rangan maka: „Við gerum oft svo lítið úr ástarmálunum“ Áskorun Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp Lively í hart: „Þú veist að við getum grafið hvern sem er“ Bíó og sjónvarp Frægir fjölguðu sér árið 2024 Lífið Innlit á æfingu Jólagesta: „Allt þarf að taka endi“ Tónlist Blaðasnápurinn Stefán Einar fórnar kampavínskóngstitlinum Lífið Fékk Sigurbjörn Árna til að lýsa óhappi í vinnunni Lífið Garðar málari og kvæntur yngstu ömmu landsins Lífið Hlaupársdagurinn þegar Ölfusá flæddi inn í Selfossbæ Lífið Fékk bónorð í jólagjöf á tónleikum Paul McCartney Lífið Fleiri fréttir Jói Pé og Króli skrifa söngleik Féll í myndlist en fann sig sem myndlistarmaður Bestu vinkonur sameinast í listinni Bjarni og Sigurður verði ekki myrtir í bók Borgarleikhúsið setur upp Moulin Rouge 250 sýningar af Elly: „Án hennar væri Íslandssagan öðruvísi“ Heitustu stjörnur listarinnar saman í Ásmundarsal Snorri skein skært í hátíðarbrókinni Engin sé uppskeran ef kartöflurnar eru ekki settar niður Verður ýmist í leyfi eða hlutastarfi á listamannalaunum Þessi fá listamannalaun 2025 Gleðilegir gestir í hátíðarskapi á safninu „Spurning um að fara að sækja réttu kokteilboðin“ Geir og Arnaldur í fangbrögðum á toppnum Í beinni: Dagur íslenskrar tónlistar Reykjavík samdi til þriggja ára við Borgarleikhúsið Bróðir Díönu Prinsessu naut sín í Reykjavík Leikstjóri Forrest Gump mættur til Reykjavíkur 52 ár á milli þeirra og þrjár bækur Ballettdansarinn Vladimir Shklyarov látinn Einar og Sigga á Grund gerð að heiðurslistamönnum Skaðlegt geðheilsunni að reyna að geðjast öðrum Leikfélag Hafnarfjarðar lagt niður Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Setja upp árekstur og hefja saman rekstur „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar „Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“ Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri Sjá meira
Útkallsbók í topp tíu eins og svo oft áður Það er helst að telja megi til tíðinda hversu tíðindalaus Bóksölulisti bókaþjóðarinnar er, eftir aðra helgi desember mánaðar. 12. desember 2023 11:00
Orri óstöðvandi sækir að kónginum Nýr bóksölulisti lítur dagsins ljós. Menn eru að koma sér fyrir. Eins og oft áður er Arnaldur Indriðason efstur, bæði í sölu þeirrar viku sem listinn tekur til sem og á uppsöfnuðum lista frá áramótum. En rithöfundar eru að koma sér fyrir á listum og skapa sér vígstöðu. 5. desember 2023 11:58
Arnaldur á toppnum og fátt fær því breytt Þá lítur fyrsti jóla-bóksölulisti Félags íslenskra bókaútgefenda ljós. Listi vikunnar nær yfir tímabilið 1.-26. nóvember en fram að jólum verður listinn svo tekinn saman vikulega. 29. nóvember 2023 12:00