Svörum fólki annars hugar. Hlustum bara með öðru eyranu. Vöndum okkur ekki nóg þegar við erum að tala. Eða tölum umhugsunarlaust.
Segjum Ha, sko, hmmm, jaaaa, þú skilur ….. alls kyns orð sem eru óþörf. Endurtökum okkur.
Greinahöfundur á FastCompany gefur góð ráð sem hjálpa okkur að vera betur vakandi yfir þessu.
Þetta eru þrjú ráð sem viðkomandi segir að svínvirki.
Hugsaðu um öndunina þína þegar þú talar. Hvers vegna? Jú, það sem gerist er að ósjálfrátt sleppum við þá frekar þessum óþarfa orðum sem of oft slæðast með hjá okkur þegar að við tölum. Þessi sko og þú skilur……
Það sem gerist líka er að við róum taugakerfið með önduninni og erum því líklegri til að standa okkur betur í samskiptum.
Margir segja að öndun ofan í maga sé lykillinn og á Youtube er hægt að finna efni og æfingar fyrir góða öndun. Íslenska orðatiltækið segir reyndar ,,andaðu með nefinu“ en það á betur við þegar við erum að hlusta og viljum vera yfirveguð þegar við svörum.
Til að æfa okkur getum við prófað að hugsa um öndunina okkar þegar við erum á fundum, þó þannig að við séum virk í hlustun. Eins þegar við sjálf tölum, hvort sem er við vinnufélaga eða fjölskyldu og vini.
Með því að vera dugleg að æfa okkur, kemst þetta upp í vana og það er til dæmis sagt að okkur geti gengið betur að segja hvað okkur finnst þegar við verðum góð í þessu, því að fólk á einfaldlega auðveldara með að skilja okkur. Við verðum skýrari í tali.
Næst er að skoða hvernig við tjáum okkur með líkamanum og hreyfingum. Til að æfa okkur er ágætt að fylgjast svolítið með öðru fólki, hvaða fólk er það sem okkur finnst framúrskarandi gott í samskiptum, meðal annars hvernig það beitir sér í líkamstjáningu, augnsambandi og svo framvegis.
Besta æfingin felst samt í að rýna í það hvernig við erum sjálf. Horfum við í augu á fólki, erum við róleg, notum við hendurnar, erum við á iði?
Æfing getur til dæmis falist í því að þegar við erum að tala við fólk í síma að vera fyrir framan spegil eða reyna að sjá okkur speglast í gleri þegar það er hægt. Fara sjónrænt í gegnum það í huganum hvernig við vorum í samtali fyrr í dag og svo framvegis.
1,2 og 3…..
Þá er það að hægja á okkur. Því það sem við gerum flest ósjálfrátt er að svara og fara að tala án þess að hugsa. Best er að temja okkur alltaf augnabliksþögn áður en við tölum. Þannig að hugsunin komist að áður en samskiptin fara af stað.
Við eigum það líka til að grípa fram í fyrir öðru fólki.
Til að hjálpa okkur að hægja á er gott að sameina þetta tvennt sem búið er að nefna: Að hugsa um öndunina okkar og hvernig líkamstjáningin okkar er.
Þetta getum við gert með því að draga andan djúpt, telja upp á þremur áður en við svörum, ná augnsambandi áður en við förum að tala, anda með nefinu á meðan aðrir eru að tala. Finna leið sem virkar best fyrir okkur.