Lífið

Seldist upp á nokkrum mínútum

Boði Logason skrifar
Uppselt hefur verið á öll úrslitakvöldin í Idol-höllinni. Mikil eftirspurn er eftir miðum.
Uppselt hefur verið á öll úrslitakvöldin í Idol-höllinni. Mikil eftirspurn er eftir miðum. Gotti

Miðasala fyrir úrslitakvöld Idol í næstu viku opnaði eftir þáttinn í föstudagskvöld, eða um klukkan 21. Samkvæmt Tix.is seldist upp á nokkrum mínútum en um 450 miðar voru í boði.

Það má með sanni segja að það sé mikil eftirspurn eftir miðum á úrslitakvöldin en það hefur verið uppselt á bæði kvöldin eftir að þátturinn fór í beina útsendingu frá Idol-höllinni í byrjun árs. 

Eva Georgs. Ásudóttir, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, segir að ásóknin hafi farið fram úr björtustu vonum. Á fyrsta úrslitakvöldinu var slegið met í símakosningunni og þá hefur áhorfið á Stöð 2 á föstudagskvöldum verið í hæstu hæðum.

Eva Georgs. Ásudóttir er sjónvarpsstjóri Stöðvar 2. Uppselt er á næsta úrslitakvöld Idol sem fer fram næstkomandi föstudagskvöld. Þátturinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2.Vilhelm

„Það hefur myndast gríðarlega góð og jákvæð stemming í kringum þættina. Við sem stöndum á bak við þá lögðum upp með það frá fyrsta degi að hafa jákvæða og skemmtilega stemmingu í kringum framleiðslu þáttanna og það gleður okkur mjög að það sé að skila sér heim í stofu,“ segir Eva. 

Tveir keppendur hafa verið sendir heim, þær Rakel og Birgitta, og eru því sex keppendur eftir og munu þeir keppa upp titilinn Idol-stjarna Íslands en úrslitaþátturinn fer fram 9. febrúar.

„Það er búið að vera ótrúlega gaman að fylgjast með keppendunum springa út frá fyrstu áheyrnarprufum og yfir í að stútfylla Idol-höllina á hverju föstudagskvöldi,“ segir Eva.

Þriðja úrslitakvöldið í beinni útsendingu fer fram næstkomandi föstudagskvöld. 

Þátturinn verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Stöð 2. Hægt er að kaupa áskrift að Stöð 2 hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.